FBI gerði húsleit hjá kosningastjóra Donalds Trump

Rannsókn bandarískra stjórnvalda á meintu leynimakki kosningabaráttu Donalds Trump með rússneskum stjórnvöldum verður sífellt stórtækari.

Paul Manafort var kosningastjóri Donalds Trump á síðasta ári.
Paul Manafort var kosningastjóri Donalds Trump á síðasta ári.
Auglýsing

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI gerði óvænta hús­leit hjá Paul Mana­fort, fyrr­ver­andi kosn­inga­stjóra í kosn­inga­bar­áttu Don­alds Trump Banda­ríkja­for­seta, í lok síð­asta mán­að­ar. The Was­hington Post greindi fyrst frá þessu.

Lög­reglu­full­trú­arnir eru sagðir hafa birst óvænt á heim­ili Mana­fort í Alex­andríu í Virg­in­íu-­ríki, með leit­ar­heim­ild. FBI lagði þar hald á skjöl og aðra muni. Heim­ild­ar­menn Was­hington Post er fólk sem þekkir til rann­sókn­ar­innar á meintu leyni­makki kosn­inga­bar­áttu Don­alds Trump með rúss­neskum stjórn­völdum í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga vest­an­hafs á síð­asta ári.

Alrík­is­full­trú­arnir knúðu dyra snemma morg­uns 26. júlí síð­ast­lið­inn, dag­inn eftir að Paul Mana­fort sjálfur hafði borið vitni af fúsum og frjálsum vilja fyrir leyni­þjón­ustu­nefnd öld­unga­deildar banda­ríska þings­ins.

Auglýsing

Tals­maður Mana­forts stað­festi við fjöl­miðla að lög­reglan hafi lagt hald á gögn á heim­ili kosn­inga­stjór­ans. Mana­fort er sagður hafa aðstoðað við leit­ina á heim­ili hans.

Sótti fund­inn með rúss­neska lög­mann­inum

Paul Mana­fort sat fund­inn fræga með rúss­neska lög­mann­inum Nataliu Ves­elnit­ska­ya fyrir hönd kosn­inga­bar­áttu Trumps ásamt syni for­seta­fram­bjóð­and­ans, Don­ald Trump yngri, og tengda­syni for­set­ans, Jared Kus­hner.

Mana­fort fékk einnig öll tölvu­bréfin sem Don­ald Trump yngri gerði opin­ber fyrr í sumar þar sem fund­ur­inn er skipu­lagður með það að mark­miði að fá upp­lýs­ingar frá rússum sem gætu skaðað for­seta­fram­boð Hill­ary Clint­on, fram­bjóð­anda Demókra­ta­flokks­ins.

Fund­­ur­inn fór fram í Trump-turni í New York 9. júní 2016, tveimur vikum eftir að Don­ald Trump hafði tryggt sér útnefn­ingu Repúblikana­­flokks­ins fyrir for­­seta­­kosn­­ing­­arn­­ar. Efni fund­­ar­ins er talið vera lyk­il­at­riði í svar­inu við meg­in­­spurn­ingum þeirra sem rann­saka meint tengsl kosn­­inga­bar­áttu Trumps við Rússa. New York Times segir hér vera komna fyrstu opin­beru vís­bend­ing­una um að í það minnsta ein­hverjir viðriðnir kosn­­inga­bar­átt­una hafi verið ginn­keyptir fyrir hjálp frá Rús­s­landi.

Ekki er víst að rús­s­­neski lög­­­mað­­ur­inn, Natalia Ves­elnit­ska­ya, hafi reitt fram upp­­lýs­ingar um Clin­t­on.

Sér­staki sak­sókn­ar­inn Robert Mueller fer með rann­sókn máls­ins af hálfu banda­rískra stjórn­valda. Mueller var ráð­inn til þess að rann­saka meint áhrif Rússa á banda­rísku kosn­­ing­­arnar á síð­­asta ári og sam­­skipti kosn­­inga­bar­áttu Trumps við rús­s­­neska ráða­­menn og umboðs­­menn þeirra. Fyrir vikið hefur Mueller sætt gagn­rýni for­­set­ans sem segir sög­­urnar allar upp­­­spuna frá A-Ö, jafn­­vel þótt sýnt hafi verið fram á ann­að.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent