Héraðsdómur Reykjaness veitti í dag stjórn sameinaðs Silicons ehf. heimild til greiðslustöðvunar sem miðar að því að ná bindandi nauðasamningum við lánadrottna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.Á meðal eigenda félagsins eru íslenskir lífeyrissjóðir og íslensk fjármálafyrirtæki. Í maí átti Arion banki, sem er líka stærsti lánveitandi United Silicon, um ellefu prósent, Frjálsi lífeyrissjóðurinn 5,6 prósent, Festa Lífeyrissjóður 3,7 prósent og eftirlaunasjóður atvinnuflugmanna rúmlega hálft prósent. Meðal annarra skráðra eigenda er lögmannsstofan Veritas og Magnús Garðarsson, sem á eitt prósent í fyrirtækinu. Samkvæmt frétt RÚV frá því í maí er 75 prósent eignarhaldsins skráð í Hollandi en endanlegt eignarhald þess hluta er óljóst.
Þar segir að áðstæðan séu „erfiðleikar í rekstri kísilmálmverksmiðju fyrirtækisins í Helguvík sem rekja má til síendurtekinna bilana í búnaði sem valdið hafa félaginu miklu tjóni.“ Vegna þessara rekstrarerfiðleika hafi verið fyrirsjáanlegt að félagið myndi að óbreyttu eiga erfitt með að standa í skilum við lánardrottna og að yfirvofandi séu aðgerðir einstakra kröfuhafa ef ekki verður brugðist við án tafar. „Nýfallinn gerðardómur í deilu félagsins við ÍAV eykur enn á þessa óvissu en samningar um uppgjör þeirra skulda sem þar var tekist á um hafa ekki borið árangur.“
Í tilkynningunni segir að hluthafar hafi frá því að verksmiðjan tók til starfa lagt félaginu til viðbótarhlutafé til að fjármagna reksturinn og endurbætur á búnaði og almennri aðstöðu fyrir starfsfólk. „Ljóst er að enn frekari endurbætur á búnaði og aðstöðu eru nauðsynlegar til að verksmiðjan geti framleitt afurðir í því magni og af þeim gæðum sem áætlað var í upphafi og án þeirrar lyktarmengunar sem íbúar í nágrenninu hafa kvartað undan.“
Því sé það mat stjórnar félagsins að með greiðslustöðvun megi skapa ráðrúm til að grípa til þeirra ráðstafana sem nauðsynlegar séu til að koma rekstri verksmiðjunnar í eðlilegt horf. „Markaðshorfur fyrir afurðir verksmiðjunnar eru góðar og verð hefur farið hækkandi. Framtíðarhorfur eru því vænlegar að því tilskyldu að unnt verði að afla aukins fjármagns, semja við lánardrottna og endurskipuleggja reksturinn. Nauðsynlegt var að fá heimild til greiðslustöðvunar til að freista þess að rétta við rekstur félagsins og ná samningum og samstarfi við lánardrottna með það að markmiði að ná bindandi nauðasamningum.
Stjórn félagsins tekur alvarlega þá ábyrgð sem fylgir því að reka stórt fyrirtæki með mikinn fjölda starfsmanna sem skapar tekjur fyrir nærsamfélagið. Nauðasamningar eru besta leiðin til að verja þau störf og tryggja að hægt sé að halda uppbyggingu starfseminnar áfram á þann veg að fyrirtækið geti starfað í samræmi við starfsleyfi og í góðri sátt við umhverfið.“