Palin segir stefnu Íslands „tilheyra Þýskalandi nasismans“

Fyrrverandi ríkisstjóri Alaska líkir stefnu Íslands um skimun eftir Downs-heilkenni í móðurkviði og möguleikann á fóstureyðingu vegna greiningar við Þýskaland nasismans.

Sarah Palin, fyrrverandi ríkisstjóri Alaska.
Sarah Palin, fyrrverandi ríkisstjóri Alaska.
Auglýsing

Sarah Pal­in, fyrr­ver­andi rík­is­stjóri Ala­ska, for­dæmir stefnu Íslands gagn­vart skimun og þung­un­ar­rofi fóstra með Downs-heil­kenni. Palin segir aðferð­ina ranga og ill­gjarna og líkir henni við Þýska­landi nas­ism­ans. Þetta kemur fram í frétt á Fox News í dag.

„Að reyna að murka út líf í nafni þess að skapa full­komin kyn­þátt… til­heyrir Þýska­landi nas­ism­ans,“ sagði Palin í sam­tali við stöð­ina, en níu ára sonur henn­ar, Tig, er með Downs-heil­kenni.

Við­tal við Palin má sjá í mynd­bandi hér að neð­an, en í því spyr frétta­maður Fox News Palin um við­brögð hennar við því að Ísland sé að „draga úr“ börnum eins og hennar í sam­fé­lag­inu.



Ummæli Palin eru vegna umfjöll­unar CBS um háa tíðni fóst­ur­eyð­inga vegna Downs-heil­kennis-­grein­ingar í móð­ur­kviði. Sam­kvæmt umfjöll­un­inni er nær 100% fóstra eytt sem grein­ast með heil­kennið hér á landi. Hlut­fallið er svipað í Dan­mörku og Bret­landi en mun lægra í Banda­ríkj­unum þar sem ein­ungis 67% fóstra er eytt í kjöl­far grein­ing­ar.

Lífið er grátt

í umfjöllun CBS er rætt við Kára Stef­áns­son, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, en hann seg­ist vera efins um ágæti fóst­ur­eyð­inga vegna Downs-heil­kennis-­grein­ing­ar. „Mér finnst ekk­ert að því að sækj­ast eftir því að eiga heil­brigð börn, en hversu langt við ættum að ganga í þá átt er flókin ákvörð­un.“

Auglýsing

Einnig var tekið við­tal við Helgu Sól Ólafs­dótt­ur, félags­ráð­gjafa við Land­spít­al­ann og lektor við Háskóla Íslands. Helga bendir á rétt kvenna yfir eigin fram­tíð og segir Íslend­inga ekki líta á fóst­ur­eyð­ingu sem morð. „[með fóst­ur­eyð­ing­u]…endum við mögu­legt líf sem gæti haft mikla erf­ið­leika í för með sér­…og komum í veg fyrir þján­ingu barns og fjöl­skyld­unn­ar. Og mér finnst sú nálgun vera rétt­ari en að líta á þetta sem morð, það er svo afdrátt­ar­laust. Lífið er ekki svart eða hvítt, lífið er grátt.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent