Stjórn hugbúnaðarfyrirtækisins Klappa Grænna lausna hf. hefur óskað eftir skráningu á First North markað Kauphallarinnar í haust. Skráningin er háð skilyrðum og samþykki Kauphallarinnar um skráningu bréfa á Nasdaq First North en ekki verður efnt til útboðs á hlutabréfum eða skuldabréfum í aðdraganda skráningarinnar. Arion banki mun hafa umsjón með skráningunni.
Ekki hefur verið mikið um nýskráningar á First North markaðinn á undanförnum árum. Iceland Seafood International var skráð í fyrra. First North hlutabréfamarkaðurinn er sniðinn að þörfum vaxtarfyrirtækja sem eru að taka sín fyrstu skref á verðbréfamarkaði. Hann veitir fyrirtækjum aðgang að þeim kostum sem fylgja því að vera á verðbréfamarkaði en minni kröfur eru gerðar til stærðar fyrirtækis og dreifingar eignarhalds. Þá er skráningarferlið einfaldara og skylda til fyrirtækja til upplýsingagjafar ekki eins viðamikil og á Aðalmarkaðnum.
Í tilkynningu vegna fyrirhugaðrar skráningar Klappa segir að hugbúnaðarlausnir Klappa séu eitt af allra fyrstu upplýsingakerfum sinnar tegundar í heiminum á sviði umhverfismála og er þeim ætlað að styðja fyrirtæki, sveitarfélög og ríki við að byggja upp öfluga innviði til að takast á við þær áskoranir sem framundan eru á því sviði. „Traust og skilvirk aðferðafræði hugbúnaðarins mætir þörfum notenda búnaðarins við að safna saman, samkeyra, greina og miðla áreiðanlegum umhverfisupplýsingum. Hugbúnaðurinn mætir alþjóðlegri umhverfislöggjöf varðandi flesta þætti umhverfismála og einnig mikilvægum þáttum íslenskra og evrópskra umhverfislaga hvað varðar söfnun og miðlun á upplýsingum um orkunotkun og upplýsingum um meðferð á úrgangi.“
Byggir á hugviti starfsfólks
Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri félagsins, segir að Klappir byggi á hugviti starfsfólks sem hefur sérþekkingu og langa reynslu af umhverfismálum skipulagsheilda, flotastýringu bifreiða og skipa, hugbúnaðarþróun og alþjóðlegri starfsemi. „Við lítum svo á að með skráningu fyrirtækisins á Nasdaq First North markaðinn í Kauphöllinni sé stigið mikilvægt skref í framtíðarundirbúningi félagsins. Við teljum að með skráningunni skapist meiri sýnileiki og umgjörð sem komi fyrirtækinu til góða þegar fram í sækir svo sem almenn og samræmd upplýsingagjöf til hluthafa, aukinn möguleiki fyrir nýja fjárfesta til koma inn í hluthafahópinn og fara út úr fjárfestingunni þegar þeim hentar. Þá auðveldar skráningin fjármögnun á stórum verkefnum ef aðstæður kalla á ýmist með útboði á nýju hlutafé eða útgáfu skuldabréfa. Með skráningunni viljum við jafnframt gefa þeim fjárfestum og einstaklingum, sem hafa trú á að með grænum innviðum og öflugri upplýsingatækni sé hægt að minnka verulega losun gróðurhúsalofttegunda, tækifæri til að vera þátttakendur í þróun grænna hugbúnaðarlausna og innleiðingu þeirra í gegnum Klappir.“
Hugbúnaður Klappa er skýjalausn sem felur það í sér að í kjölfar breytinga á umhverfislögum og reglugerðum þjóðríkja og yfirþjóðlegra stofnana er hugbúnaður hjá öllum viðskiptavinum uppfærður jafnóðum til samræmis við þær breytingar.