Lilja: Lítill vilji til að „breyta, bæta og hagræða“

Varaformaður Framsóknarflokksins gagnrýnir skipan starfshóps sem endurskoða á umhverfi eftirlits með fjármálastarfsemi hér á landi.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Auglýsing

Lilja Dögg Alfreðs­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og vara­for­maður hans, gagn­rýnir skipan á starfs­hópi sem falið hefur verið að end­ur­skoða lög um opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi, lög um greiðslu kostn­aðar við opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi auk ákvæða ann­arra laga um fjár­mála­mark­aði eða fjár­mála­fyr­ir­tæki, ef þau tengj­ast eft­ir­liti með mark­aðn­um.

Lilja segir á Face­book síðu sinni, að skipan hóps­ins sé ekki til þess fallin að breyta, bæta eða hag­ræða á svæði eft­ir­lits með fjár­mála­kerf­inu. „Fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra virð­ist vera dug­legur að lesa nýlegt efni frá mér og í dag skip­aði hann starfs­hóp um end­ur­skoðun laga vegna opin­bers eft­ir­lits með fjár­mála­starf­sem­i. Það er gott og vel en það vekur hins vegar furðu að hóp­ur­inn er ein­göngu skip­aður full­trúum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytisins, fyrir utan for­mann­inn. Til að árangur og umbætur náist í svona mik­il­væg­ari vinnu, þarf víð­tæka sam­vinnu og sam­ráð til að sam­staða sé um þær breyt­ing­ar. Það er ljóst af þeim þröngu tíma­mörkum sem hópnum er ætlað að lít­ill vilji er hjá ráð­herra að breyta, bæta og hag­ræða á þessu svið­i,“ segir Lilja á Face­book síðu sinn­i. 

Mark­miðið með starfi hóps­ins er að hlut­verk, staða og verk­efni Fjár­mála­eft­ir­lits­ins verði sett fram með skýr­ari hætti í lögum en nú er líkt og kveðið er á um í fjár­mála­á­ætlun fyrir 2018-2022, segir í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

Auglýsing

Er starfs­hópnum meðal ann­ars falið að skoða sér­stak­lega nið­ur­stöður sendi­nefndar Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) frá í vor þar sem fjallað er um nauð­syn þess að efla eft­ir­lit á fjár­mála­mark­aði hér á landi og að skipu­lag eft­ir­lits mark­að­ar­ins verði tekið tekið gagn­gerrar end­ur­skoð­un­ar. AGS gagn­rýndi FME harð­lega í umsögn sinni, og sagði að nauð­syn­legt væri að styrkja eft­ir­lit með fjár­mála­kerf­inu á Ísland­i. 

Starfs­hópnum er falið að vinna drög að laga­frum­varpi, ásamt skila­grein, og leggja fyrir ráð­herra eigi síðar en 15. des­em­ber næst­kom­andi.

Starfs­hóp­inn skipa Jóhannes Karl Sveins­son hrl., for­mað­ur, Guð­björg Eva Bald­urs­dótt­ir, lög­fræð­ingur í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­i, Har­aldur Stein­þórs­son, lög­fræð­ingur í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­i, Leifur Arn­kell Skarp­héð­ins­son, lög­fræð­ingur í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, og Tinna Finn­boga­dótt­ir, hag­fræð­ingur í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­i. Erind­is­bréf starfs­hóps­ins má lesa hér. 

Lilja segir enn fremur að mik­il­vægt sé að sam­ræma og sam­eina eft­ir­lit á einum stað, til að auka yfir­sýn og skerpa á eft­ir­lits­hlut­verk­inu. „Í þess­ari end­ur­skoðun á lögum um opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi á að líta til þess að sam­eina eft­ir­lit með fjár­mála­stofn­un­um. Veiga­mikil rök hníga í þá átt. Í fyrsta lagi mun það auka heild­ar­sýn á helstu áhættu­þætti fjár­mála­kerf­is­ins að sam­eina krafta Fjár­mála­eft­ir­lits og Seðla­banka Íslands. Í öðru lagi með því að sam­eina eft­ir­lit með lausa­fjár­stöðu við­skipta­banka og eig­in­fjár­stöðu þeirra, þá verður fram­kvæmd fjár­mála­eft­ir­lits skýr­ari og auð­veld­ara fyrir lán­veit­anda til þrauta­vara að bregð­ast við með skil­virk­ari hætti. Í þriðja lagi mun takast betur að við­halda pen­inga­legum og fjár­mála­legum stöð­ug­leika í hag­kerf­inu með því að stýri­tæki þjóð­hags­var­úð­ar­stefnu séu hjá einum aðila. Í fjórða lagi, þá mun mannauður nýt­ast betur og upp­lýs­inga­skipti verða greið­ari með þessu fyr­ir­komu­lagi. Þekk­ing­ar­grunnur sam­ein­aðs eft­ir­lits verður fjöl­breytt­ari og þar af leið­andi meiri slagkraft­ur,“ segir Lilja. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent