Sigmundur Davíð: Kallar eftir þori til að ræða flóttamannamál

Fyrrverandi forsætisráðherra segir að þeir sem móti stefnu verði að þora að ræða stærstu úrlausnarefni samtímans, eins og aukin flóttamannastraum. Annars muni þeir eftirláta öfgamönnum umræðuna og lausnirnar á málinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, segir að ef stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn, fjöl­miðl­ar, fræði­menn og aðrir sem hafi það hlut­verk að ræða lausnir, horfa til fram­tíðar og móta stefnu þora ekki að ræða stærstu úrlausn­ar­efni sam­tím­ans, eins og aukin flótta­manna­straum, þá séu þeir að eft­ir­láta öfga­mönnum umræð­una og lausn­irnar á mál­inu. Þetta kemur fram í grein sem hann skrifar í Við­skipta­blaðið í dag þar sem hann kallar eftir umræðu um flótta­fólk.

Í henni segir Sig­mundur Dav­íð, sem nú er þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, að straumur flótta­manna og ann­ars föru­fólks til Evr­ópu sé far­inn að valda veru­legri tog­streitu inn­an, og á milli, Evr­ópu­landa og að þau átök séu að áger­ast. Flestir þeirra sem komi til dæmis yfir hafið frá Líbýu til Ítalíu séu ekki að flýja stríð, heldur að leita betri lífs­kjara. Að óbreyttu muni þeim sem leggi í slíka för fjölga jafnt og þétt sam­hliða því að hagur fátæk­ustu ríkja heims muni vænkast. Fólks­fjölgun muni verða gríð­ar­leg í þró­un­ar­lönd­unum á næstu ára­tugum og við lok yfir­stand­andi aldar muni 14 af 25 fjöl­menn­ustu ríkjum heims vera í Afr­íku, en ekk­ert í Evr­ópu.

Auglýsing
Sigmundur Davíð segir að fram að þeim tíma þurfi að leysa ýmis mál. „Til að byrja með þarf stefnu. Ef stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn, fjöl­miðl­ar, fræði­menn og aðrir sem hafa það hlut­verk að ræða lausnir, horfa til fram­tíðar og móta stefnu þora ekki að ræða stærstu úrlausn­ar­efni sam­tím­ans eru þeir að eft­ir­láta öfga­mönnum umræð­una og lausn­irn­ar. Ef það ger­ist er ólík­legt að heim­ur­inn haldi áfram að batna.“

Sagði Fram­sókn skorta sann­fær­ingu í mál­efnum hæl­is­leit­enda

Fyrr í dag til­kynnti Svein­björg Birna Svein­björns­dótt­ir, odd­viti Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, að hún hefði sagt sig úr Fram­sókn­ar­flokkn­um. Í stöðu­upp­færslu á Face­book sagði hún að að innan Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins séu skiptar skoð­­anir um mál­efni hæl­­is­­leit­enda. „Flokks­­menn eru hins vegar ragir við að tjá skoð­­anir sínar opin­ber­­lega. Af ein­hverjum ástæðum eru Fram­­sókn­­ar­­menn sér­­stak­­lega við­­kvæmir þegar að þessu kem­­ur. Í huga margra þeirra jafn­­­gildir það því að ganga fyrir björg að láta í ljós raun­veru­­lega afstöðu sína í mál­efnum hæl­­is­­leit­enda. Þeir telja að þau séu svo „við­­kvæm“ að þeirra eigin sann­­fær­ing skipti ekki máli! Þeir velja því að end­­ur­óma skoð­­anir sem þeir telja lík­­­legar til að forða þeim frá frek­­ari spurn­ing­­um. Vandi þeirra er hins vegar sá að almenn­ingur heyrir ágæt­­lega. Almenn­ingur heyrir holan hljóm. Fram­­sókn­­ar­­menn skortir sann­­fær­ingu þegar þeir eru inntir eftir afstöðu sinni til mál­efna hæl­­is­­leit­enda.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent