Sveinbjörg hætt í Framsókn – Segir skiptar skoðanir um hælisleitendur innan flokksins

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir er hætt í Framsóknarflokknum. Hún segir Framsóknarmenn skorta sannfæringu í afstöðu sinni til hælisleitenda.

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir 3.8.2017
Auglýsing

Svein­björg Birna Svein­björns­dótt­ir, odd­viti Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í Reykja­vík, hefur sagt skilið við Fram­sókn­ar­flokk­inn. Hún greinir frá þessu í stöðu­upp­færslu á Face­book í dag. 

Hún segir að sér hafi orðið það ljóst að und­an­förnu að for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins skorti metnað til að vinna honum fylgis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Stefnt sé að því að halda honum sem sér­hags­muna­flokki til sveita. Slíkt hugn­ist henni ekki. „Stór­yrtar yfir­lýs­ingar frá for­ystu flokks­ins um ummæli mín eru hjóm eitt. Flokkur sem er ekki til­bú­inn að ræða mik­il­væg mál­efni verður aldrei annað en smá­flokk­ur. Sam­leið minni með Fram­sókn­ar­flokknum er nú lok­ið. Sjálf held ég ótrauð áfram. Það sem eftir lifir kjör­tíma­bils mun ég starfa sem óháður borg­ar­full­trúi, í fullu umboði kjós­enda minna, með þá sann­fær­ingu að það sé betra að vera trúr skoð­unum sínum en að eiga við­hlæj­endur í Fram­sókn­ar­flokkn­um.“

Skiptar skoð­anir um mál­efni hæl­is­leit­enda

Í stöðu­upp­færsl­unni segir Svein­björg Birna að innan Fram­sókn­ar­flokks­ins séu skiptar skoð­anir um mál­efni hæl­is­leit­enda. „Flokks­menn eru hins vegar ragir við að tjá skoð­anir sínar opin­ber­lega. Af ein­hverjum ástæðum eru Fram­sókn­ar­menn sér­stak­lega við­kvæmir þegar að þessu kem­ur. Í huga margra þeirra jafn­gildir það því að ganga fyrir björg að láta í ljós raun­veru­lega afstöðu sína í mál­efnum hæl­is­leit­enda. Þeir telja að þau séu svo „við­kvæm“ að þeirra eigin sann­fær­ing skipti ekki máli! Þeir velja því að end­ur­óma skoð­anir sem þeir telja lík­legar til að forða þeim frá frek­ari spurn­ing­um. Vandi þeirra er hins vegar sá að almenn­ingur heyrir ágæt­lega. Almenn­ingur heyrir holan hljóm. Fram­sókn­ar­menn skortir sann­fær­ingu þegar þeir eru inntir eftir afstöðu sinni til mál­efna hæl­is­leit­enda.“

Auglýsing
Sveinbjörg Birna segir að almenn­ingur sé fljótur að átta sig á því hverjir hafi þor til að ræða málin og hverjir ekki. Hún hafi verið kjörin af Reyk­vík­ingum og fyrir þá hafi hún starf­að. „Sem odd­viti Fram­sókn­ar-og flug­vall­ar­vina hef ég stutt það sem vel hefur verið gert en jafn­framt bent á heppi­legri leiðir þegar meiri­hlut­inn hefur villst af leið. Því miður hefur hið síð­ar­nefnda orðið megin verk­efni mitt. Ég veigra mér ekki við að ræða „við­kvæm“ mál. Ég ræði um öll mál af hrein­skilni, hvort heldur í tveggja manna tali, ræðu­stól í borg­ar­stjórn eða við­tölum í fjöl­miðl­um. Það vita kjós­end­ur. Skiptir þá ekki máli hvort ég ræði um fjár­mál borg­ar­inn­ar, hús­næð­is­mál, sam­göngu­mál, skóla­mál, vel­ferð­ar­mál eða mál­efni hæl­is­leit­enda. Ég stend með skoð­unum mínum í stað þess að end­ur­óma skoð­anir ann­arra.“

Sagði börn hæli­leit­enda leiða til „sokk­ins kostn­að­ar“

Svein­björg Birna er odd­viti Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins í borg­­ar­­stjórn Reykja­vík­­­ur. Hún náði kjöri eftir mikla fylg­is­aukn­ingu flokks­ins á síð­­­ustu dögum fyrir kosn­­ing­­arnar 2014. Sú fylg­is­aukn­ing kom til eftir að Svein­­björg Birna kom í við­­tal átta dögum fyrir kosn­­ing­­arnar og sagði m.a. að „á meðan við erum með þjóð­­­kirkju eigum við ekki að úthluta lóðum undir hús eins og moskur eða kirkjur fyrir grísku­rét­­­trún­­­að­­­ar­­­kirkj­una“. Í við­tali við Vísi sagð­ist hún hafa „búið í um eitt ár í Sádí Ar­abíu og byggi þessa skoðun mína ekki á for­­­dóm­um, heldur reynslu.“

Svein­­björg Birna ræddi þessi mál í við­tal­inu við Útvarp Sögu í lok júlí. Þar sagði hún að stjórn­­­mála­­menn þyrftu að hugsa sinn gang veru­­lega ef það væri þannig að þöggun ætti að ríkja um óþæg­i­­lega hluti. Hún ræddi síðan mál­efni inn­­flytj­enda á Íslandi og mein­tan kostnað sem þeim fylg­­ir. Svein­­björg Birna nefndi engar tölur í þeim efnum en sagði að það fylgdi t.d.  mik­ill kostn­aður því fyrir grunn­­skóla Reykja­víkur að taka við börnum sem væru að sækja eftir hæli hér­­­lend­­is. Þessi börn stoppi stutt við og hætti í skól­­anum ef að fjöl­­skyldum þeirra sé vísað úr landi eftir ákveð­inn tíma. „Þá er þetta að ein­hverju leyti sokk­inn kostn­aður hjá Reykja­vík­­­ur­­borg.“

Ummæli hennar um börn hæl­is­leit­enda hafa verið for­dæmd og gagn­rýnd harð­lega, meðal ann­ars innan úr Fram­sókn­ar­flokknum og af for­ystu hans.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent