Að meta óáþreifanleg gæði

Hvernig mælum við lífsgæði, og hvers virði er það að losna við langvarandi verki?

Auglýsing
Tinna Laufey

Tinna Laufey Ásgeirs­dótt­ir, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, fjallar um mæl­ingar á lífs­gæðum í ítar­legri grein í Vís­bend­ingu. Er þar meðal ann­ars vikið að því hvernig megi greina óáþreif­an­leg gæði og mæla þau við mat á lífs­kjör­u­m. 

Tinna birti á dög­unum vís­inda­grein í sam­starfi við dr. Þór­hildi Ólafs­dótt­ur, við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, og Edward C. Norton, pró­fessor við Háskól­ann í Michig­an, þar sem meðal ann­ars er verið að greina virði þess að losna við þrá­láta verki.

„En er hægt að meta slíkt? Hætt er við því að svör ein­stak­linga við beinum spurn­ingum um virði þess að losna undan verkjum væru frekar ómark­viss og kannski helst á þá vegu að heilsan sé ómet­an­leg. Ýmis­legt í atferli fólks ber þess þó merki að önnur gæði geti verið metin mik­il­væg­ari. Fólk er oft á tíðum ekki til­búið til þess að fórna öðrum lífs­gæðum fyrir heils­una. Dæmi þess sjáum við reglu­lega í hegðun fólks sem kýs sjálft að fórna heil­brigðum lífs­háttum fyrir önnur gæði með athöfnum sín­um. Hér má nefna óhollt matar­æði, hættu­leg störf eða litla lík­ams­hreyf­ingu sem meðal ann­ars kemur fram í ofnotkun á öku­tækj­um. Sá ein­stak­lingur sem fer fót­gang­andi til vinnu sinn­ar, svo dæmi sé tek­ið, er fyrir þær sakir í betra lík­am­legu ástandi og getur vænst lengri og betri líf­daga. En af hverju ganga ekki allir til vinnu sinn­ar? Ástæðan hlýtur að vera sú að önnur mark­mið ráði ferð­inni; til greina kemur t.d. að ein­stak­ling­ur­inn sæk­ist frekar eftir þeim auknu tekjum og meiri neyslu sem fleiri vinnu­stundir geti skil­að, þar sem um ræðir gæði sem greiða þarf fyr­ir. Ein­stak­ling­ur­inn fórnar þá heil­brigði fyrir ýmis önnur lífs­gæði. Tími er hér dæmi um tak­mark­aða auð­lind og ein­stak­ling­ur­inn er sjálfur ekki til­bú­inn til þess að fórna þeim tæki­færum sem tím­inn getur skapað honum á öðrum vett­vangi fyrir heils­una. Heilsa er flestum mik­il­væg en er þó ekki það eina sem veitir fólki vel­ferð,“ segir meðal ann­ars í grein­inn­i. 

Auglýsing

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér, en ritið er sér­fræði­rit um við­skipti, efna­hags­mál og nýsköpun

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent