Verðandi þingmaður segir Alþingi karllægt vinnuumhverfi

Theodóra S. Þorsteinsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, segir ákvörðun hennar um að hætta um áramót endurspegli eðlilegan uppsagnarfrest. Eftirmaður hennar gagnrýnir langa vinnudaga á Alþingi.

Karólína Helga Símonardóttir, verðandi þingmaður Bjartrar framtíðar.
Karólína Helga Símonardóttir, verðandi þingmaður Bjartrar framtíðar.
Auglýsing

Kar­ólína Helga Sím­on­ar­dótt­ir, sem mun taka sæti Theó­dóru S. Þor­steins­dóttur á þingi um kom­andi ára­mót, segir að ýmis­legt sé gam­al­dags við þing­störfin sem megi breyta. Til að mynda séu vinnu­dagar langir og það sé dæmi um karllægt vinnu­um­hverfi. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Hún seg­ist þó ekki deila áhyggjum Theó­dóru, sem situr á þingi fyrir Bjarta fram­tíð, sem hélt því fram í við­tali um helg­ina að Alþingi væri eins og mál­stofa sem leiði sjaldn­ast til nið­ur­stöðu.

Theo­dóra segir sjálf við blaðið að hún líti á þann frest sem hún hefur gefið fyrir brott­hvarfi sínu af þingi vera eðli­legan upp­sagn­ar­frest. Þannig hafi eft­ir­maður hennar tíma tím að und­ir­búa sig. Auk þess ætlar hún að beita sér fyrir nokkrum málum á kom­andi þingi. Meðal ann­ars ætlar hún að kalla eftir skýrslu varð­andi banka­mál. „Til dæmis til að sjá hvert umfangið er hjá þeim sem hafa misst bæði fyr­ir­tæki og heim­ili á grund­velli ólög­legra lána.“

Auglýsing

Ætlar að ein­beita sér að Kópa­vogi

Theo­­dóra greindi frá því í við­tali við Kópa­vogs­­blað­ um helg­ina að hún ætli að segja af sér þing­mennsku um ára­mót, en hún verður þá ein­ungis búin að sitja sem þing­maður í rúmt ár.

Hún ætlar þess í stað að ein­beita sér að störfum sínum sem odd­viti Bjartrar fram­­tíðar í Kópa­vogi, þar sem flokk­­ur­inn er í sveita­­stjórn. Theo­dóra hefur gegnt báðum störfum frá því að hún var kjörin á þing og þegið laun fyrir þau bæði. Fyrir það hefur hún verið harð­lega gagn­rýnd en sjálf hefur hún bent á að ýmsir karl­menn hafi gert slíkt hið sama á árum áður.

Sveita­­stjórn­­­ar­­kosn­­ingar fara fram í lok maí næst­kom­andi. Flokkur Theo­­dóru, Björt fram­­tíð, situr í rík­­is­­stjórn.

Í við­tal­inu sagði Theo­­dóra: „Þing­­störfin hafa komið mér á óvart og snú­­ast ekki, ólíkt störfum í sveit­­ar­­fé­lag­inu, um stefn­u­­mótun og fram­­kvæmd verk­efna. Þau eru meira eins og mál­­stofa. Flest mál sem sam­­þykkt eru koma úr ráðu­­neytum í gegnum rík­­is­­stjórn. Við þing­­menn höfum svo það hlut­verk að fjalla um þau en komum hvergi að neinni stefn­u­­mótun eða ákvarð­ana­­töku um strauma og stefn­­ur. Reyndar geta þing­­menn óskað umræðu um allt á milli him­ins og jarð­­ar. Oft er sú umræða á flokkspóli­­tískum nót­um, sett upp til að berja sér á brjóst eða berja á póli­­tískum and­­stæð­ing­­um. Það hentar mér ekki enda leiða þær sjaldn­­ast til nokk­­urrar nið­­ur­­stöð­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent