Sigurður Ingi: „Þetta hangir allt saman“

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins tekur undir með varaformanni flokksins og vill setja skýrari reglur um eignarhald útlendinga á landi.

Sigurður Ingi
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að móta þurfi skýra stefnu um eign­ar­hald á landi og jörð­um, meðal ann­ars til að koma í veg fyrir að erlendir aðilar geti keypt upp stóran hluta lands­ins. 

Á Face­book síðu sinni gerir hann grein Lilju Alfreðs­dótt­ur, vara­for­manns flokks­ins, að umtals­efni og seg­ist taka undir með henni um mik­il­vægi þess, að móta skýra stefnu. Hann nefnir í leið­inni að þessi mál teng­ist einnig vanda sauð­fjár­bænda. „Góð grein hjá Lilju um mál­efni sem við Fram­sókn­ar­menn höfum miklar áhyggjur af hvert stefnir með. Menn muna Gríms­staði en þar stóð til að selja 1.3% (ef ég man rétt) af Íslandi til eins kín­verja. Það var stöðv­að. En svo kom EES mað­ur­inn fra Bret­landi og keypti . Á síð­ustu árum hafa efn­aðir ein­stak­lingar eign­ast fleiri jarðir í Vopna­firði og í Fljót­um. Til­gang­ur­inn virð­ist vera sá að kom­ast yfir lax­veiði­rétt­indi. Þar bera menn stórfé á bændur til að eign­ast heilu dal­ina, firði og vatns­rétt­ar­svæði - Bænda sem nú ströggla vegna tíma­bund­ins vanda sauð­fjár­rækt­ar. Erlendir aðilar vilja gjarna eign­ast stórar jarð­ir/land­svæði. Við munum Jök­ulsár­lón - höfum heyrt af Hjör­leifs­höfða. Ég held að við viljum ekki þessa þróun - þess vegna þarf að spyrna við fót­u­m. 

1. breyta lögum þannig að bannið gildi jafnt um EES borg­ara sem aðila utan EES - skýra reglur um und­an­þágur þannig að um tilltölu­lega lítil land­svæði væri að ræða (t.d. undir 10ha)

Auglýsing

2. rík­is­valdið þarf að hafa skýra eig­inda­stefnu (mál sem Þór­unn Egils­dóttir hefur lagt fram á þingi) - Kaupa þær jarðir sem við viljum að "þjóð­in" eigi. Selja eða leigja aðrar til m.a að tryggja fæðu­ör­yggi og blóm­legar byggð­ir.

3. fram­kvæma strax skyn­samar til­lögur sauð­fjár­bænda vegna núver­andi mark­aðs­vanda. - Þetta hangir allt sam­an,“ segir Sig­urður Ingi á Face­book síðu sinn­i. 

Í grein sinni í Frétta­blað­inu segir Lilja að mik­il­vægt sé fyrir stjórn­völd að greina málin vel, og átta sig á mik­il­vægi þess hversu verð­mætt landið sé. „Landið okkar er verð­mætt sökum nátt­úru­auð­linda og land­fræði­legrar legu. Önnur ríki innan Evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins (EES) hafa tak­markað eign­ar­hald erlendra aðila að landi og það eigum við einnig að gera. Núver­andi lög­gjöf er ógagnsæ og heim­ildir og tak­mark­anir erlendra aðila utan EES-­svæð­is­ins í fast­eignum hér á landi því óskýrar m.a. vegna þess að ráð­herra getur veitt und­an­þágu. Því er nauð­syn­legt að ráð­ast í heild­ar­end­ur­skoðun laga um eign­ar­rétt og afnota­rétt fast­eigna,“ segir Lilja.



Hún nefnir að l
ög um eign­ar­rétt og afnota­rétt fast­eigna kveði á um að eng­inn megi öðl­ast eign­ar­rétt eða afnota­rétt yfir fast­eignum á Íslandi, þar á meðal veiði­rétt, vatns­rétt­indi eða önnur fast­eigna­rétt­indi, nema að við­kom­andi aðili sé íslenskur rík­is­borg­ari eða með lög­heim­ili á Ísland­i. 

Sam­kvæmt núgild­andi lögum hafa aðilar á EES-­svæð­inu, ein­stak­lingar og lög­að­il­ar, sömu rétt­indi og íslenskir rík­is­borg­arar í þessum efn­um. „Hins vegar getur ráð­herra vikið frá þessu skil­yrði sam­kvæmt umsókn frá þeim sem hefur rétt til að stunda atvinnu­rekstur hér á Íslandi og vill öðl­ast eign­ar­rétt eða afnota­rétt yfir fast­eign til beinnar notk­unar í atvinnu­starf­semi sinni eða til að halda þar heim­ili. Í gildi var reglu­gerð sem mein­aði erlendum aðila með lög­heim­ili á EES-­svæð­inu að kaupa land nema að kaupin væru liður í að hann nýtti rétt sinn til að hafa á Íslandi lög­mæta dvöl eða starf­sem­i,“ segir í grein Lilju. 

Hún segir hættu vera á því að tóma­rúm mynd­ist sem geri erlendum auð­mönnum mögu­legt að kaupa upp stóran hluta lands­ins. „Ef ekk­ert verður aðhaf­st, þá mynd­ast tóma­rúm sem fjár­sterkir aðilar nýta sér og of seint verður að koma í veg fyrir að nátt­úru­auð­lindir glat­ist úr eigu þjóð­ar­innar vegna tóm­læt­is. Stað­reyndin er sú að land­fræði­leg lega Íslands er afar verð­mæt og mun aukast að verð­mæti í fram­tíð­inni meðal ann­ars vegna auk­ins mik­il­vægis norð­ur­slóða. Alþingi hefur verk að vinna til að gæta að hags­munum Íslands.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent