Skeljungur hækkaði mikið en er samt langt frá útboðsgengi

Bréf í Skeljungi hækkuðu um þrettán prósent í dag. Þau eru samt sem áður langt frá því gengi sem var á bréfunum þegar félagið var skráð á markað í desember 2016. Markaðsvirði Skeljungs hækkaði um 1,5 milljarð í dag.

Skeljungur var skráður á markað í desember í fyrra.
Skeljungur var skráður á markað í desember í fyrra.
Auglýsing

Bréf í Skelj­ungi hækk­uðu umtals­vert í Kaup­höll­inni í dag. Um tíma, fyrir hádeg­ið, nam hækk­unin tæp­lega 17 pró­sentum en verðið lækk­aði hins vegar þegar leið á dag­inn. Við lokun mark­aða nam hækk­unin hins vegar 12,98 pró­sentum og gengi bréf­anna var 5,92 krónur á hlut.

Bréf í Skelj­ungi eru þó enn umtals­vert frá því verði sem var á þeim þegar félagið var skráð á markað í des­em­ber 2016.

Gott hálfs­árs­upp­gjör

Ástæðan fyrir hækk­un­inni í dag var sú að félagið kynnti hálfs­árs­upp­gjör sitt í gær. Þar kom fram að hagn­aður þess á fyrstu sex mán­uðum árs­ins hafi verið 728 millj­ónir króna og arð­semi eigin fjár 20,5 pró­sent. Í fjár­festa­kynn­ingu sem Skelj­ungur hélt sagði að árið hefði aldrei farið betur af stað í sögu félags­ins. Það væri að selja aukið magn á inn­an­lands­mark­aði og áfram væri mikil aukn­ing í sölu flug­véla­elds­neyt­is. Þá hafi samn­ingur félags­ins um sölu á elds­neyti til Costco, sem rekur eina stöð með tólf dælum í Garða­bæ, skipt umtals­verðu máli.

Auglýsing

Alls jókst sala á elds­neyti til bif­reiða um sjö pró­sent miðað við sama tíma­bil í fyrra, sala til skipa um 20 pró­sent og sala á flug­véla­elds­neyti um 40 pró­sent. Mark­aðs­hlut­deild Skelj­ungs á mark­aði fyrir flug­véla­bensín er nú 87 pró­sent. Félagið er með 42,6 pró­sent hlut­deild í sölu til skipa og 30,2 pró­sent í sölu á bens­íni og dísil til bif­reiða. Því blasir við að breyt­ingar á sölu til bif­reiða hefur ekki ráð­andi áhrif á stöðu Skelj­ungs.

Skelj­ungur sleit í júlí við­ræðum um kaup á öllu hlutafé í Basko, sem meðal ann­ars rekur búðir undir merkjum 10-11, Iceland og Dunkin Donuts. Í fjár­festa­kynn­ing­unni segir að félagið ætli samt sem áður að styrkja sam­starf og leita frek­ari tæki­færa varð­andi þæg­inda­vöru­verslun í nán­ustu fram­tíð. Auk þess ætlar Skelj­ungur að halda áfram upp­bygg­ingu fjölorku­stöðva fyrir vetn­is- og raf­magns­bíla og skoða frekar útvíkkun á starf­semi sinni erlend­is. Gert er áfram ráð fyrir vexti í eft­ir­spurn hér­lendis í ljósi þess að spár geri ráð fyrir áfram­hald­andi hag­vexti og aukn­ingu í komu ferða­manna.

Mark­aðsvirðið upp um 1,5 millj­arð í dag

Skelj­ungur er síð­asta félagið sem skráð var á markað í Kaup­höll­inni. Bréf félags­ins voru skráð þar í des­em­ber í fyrra. Skrán­ing­ar­gengið var 6,9 krónur á hlut. Í gær, mánu­dag, fór gengi bréf­anna niður í 5,24 krónur á hlut. Gengið hafði því lækkað um tæpan fjórð­ung frá því að útboðið átti sér stað.

Við­mæl­endur Kjarn­ans sem starfa á fjár­mála­mark­aði segja að mikil úlfúð hafi verið á meðal fjár­festa vegna þessa. Líf­eyr­is­sjóð­ir, sem eiga stóran hlut í félag­inu, séu til að mynda mjög óánægðir með þá þróun sem hafi átt sér stað. Sú óánægja bein­ist mest að Arion banka, sem seldi hlutafé í útboð­inu og sá um það.

Þótt bréf í Skelj­ungi hafi náð sér aðeins á strik í dag í kjöl­far óvænts upp­gjörs er tölu­vert í land að virðið nái útboðs­geng­inu. Enn er gengi félags­ins rúm­lega 14 pró­sentum lægra en það var við skrán­ingu.

Mark­aðsvirði Skelj­ungs er um 12,5 millj­arðar króna og jókst um 1,5 millj­arða króna í dag. Þegar félagið var skráð á markað var mark­aðsvirð­ið, miðað við skrán­ing­ar­gengi, 14,5 millj­arðar króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent