Magnús í United Silicon: Þetta er slagur um eignarhald

Fyrrverandi forstjóri United Silicon neitar því að hafa brotið lög, og segir nú sé farinn af stað barátta um eignarhald kísilverksmiðjunnar í Helguvík.

Úr kísilverinu. Mynd: United Silicon
Auglýsing

Magnús Ólafur Garð­ars­son, stofn­andi og fyrr­ver­andi for­stjóri United Sil­icon, hefur sent frá sér til­kynn­ingu vegna kæru sem stjórn United Sil­icon lagði fram á hendur honum í gær vegna gruns um stór­felld auðg­un­ar­brot og skjala­fals. 

Vitnað er til hennar á vef Vís­is, þar sem hann ítrekar meðal ann­ars sak­leysi sitt, og segir ásak­anir á hendur honum með öllu til­hæfu­laus­ar.

Í frétt Vísis segir að þetta mál sé farið að snú­ast um bar­áttu um hluta­féð í United Sil­icon. „Arion Banki hefur farið með stjórn á félag­inu síðan í vor, þar sem erf­ið­lega gekk að reka verk­smiðj­una af tækni­legum ástæð­um, auk þess sem það vant­aði fé til þess að lag­færa hana og koma rekstr­inum í lag. Arion Banki og hlut­hafar í hópi með bank­anum komu að mestu leyti með það fé, en kröfð­ust þess í stað­inn að taka völdin í félag­inu. Það gerðu þeir með því að setja inn sína eigin stjórn­ar­menn. Ég sam­þykkti það og fór út úr stjórn félags­ins til að greiða veg­inn til að laga það sem laga þurfti. Bank­inn stopp­aði hins vegar ekki þar og hefur hann í síð­ustu viku reynt að taka hluta­bréf okkar ein­stak­linga sem hafa fjár­fest í félag­inu. Nú í þess­ari viku hef ég verið kærður fyrir eitt­hvað meint brot, sem ég get ekki ímyndað mér hvað er, enda hef ég ekki heyrt neitt um málið fyrr enn í gær­kvöldi og þá í gegnum fjöl­miðla. Það er aug­ljóst að Arion Banki er að reyna að koma mér í eins lélega stöðu og mögu­legt er, svo hann geti eign­ast allt félagið án þess að borga fyrir það. Þetta eru með skítug­ustu brögðum sem ég hef séð beitt í við­skipta­heim­in­um. 

Auglýsing

Ég bíð eftir að heyra hver þessi meintu brot eru, svo ég geti varið mig og sann­leik­ur­inn komi fram. Ég er til­bú­inn að vinna með stjórn félags­ins og/eða hér­aðs­sak­sókn­ara til að lýsa mál­inu frá öllu hlið­u­m,“ segir Magnús í til­kynn­ing­unn­i. 

United Sil­icon rekur kís­­­­­­il­­­­­­málm­­­­­­verk­smiðju í Helg­u­vík. Félagið óskaði eftir greiðslu­­­­­­stöðvun 14. ágúst síð­­­­­­ast­lið­inn. Ástæðan eru erf­ið­­­­­­leikar í rekstri kís­­­­­­il­­­­­­málm­­­­­­verk­smiðj­unni sem hóf fram­­­­­­leiðslu í nóv­­­­­­em­ber 2016, og rekja má til síend­­­­­­ur­­­­­­tek­inna bil­ana í bún­­­­­­aði sem hafa valdið félag­inu miklu tjóni. Nýfall­inn gerð­­­­­­ar­­­­­­dómur í deilu félags­­­­­­ins við ÍAV hf. eykur enn á óvissu félags­­­­­­ins. Sam­­­­­­kvæmt honum þarf United Sil­icon að greiða ÍAV um einn millj­­­­­­arð króna. Greiðslu­­­­­stöðvun fyr­ir­tæk­is­ins var fram­­­­­lengd í vik­unni og gildir nú fram í des­em­ber.

Á meðal hlut­hafa og lán­veit­enda þess eru Arion banki og íslenskir líf­eyr­is­­­­­­sjóð­­­­­­ir. Alls nam fjár­­­­­­­­­fest­ing líf­eyr­is­­­­­sjóða í verk­efn­inu um 2,2 millj­­­­­örðum króna. Þar af fjár­­­­­­­­­festu þrír líf­eyr­is­­­­­sjóðir sem eru í stýr­ingu hjá Arion banka í verk­efn­inu fyrir 1.375 millj­­­­­ónir króna. Frjálsi líf­eyr­is­­­­­sjóð­­­­­ur­inn lagði til langstærstan hluta þeirrar upp­­­­­hæð­­­­­ar, eða 1.178 millj­­­­­ónir króna. Hinir tveir sjóð­irnir eru Eft­ir­­­­­launa­­­­­sjóður félags íslenskra atvinn­u­flug­­­­­manna (EFÍA) og Líf­eyr­is­­­­­sjóð starfs­­­­­manna Bún­­­­­að­­­­­ar­­­­­banka Íslands (LSBÍ). Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­­­un­­­­­ar­­­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­­­stöðvum hans í Borg­­­­­ar­­­­­túni.

Alls skuld­­ar United Sil­icon Arion banka um átta millj­­­­arða króna. Auk þess færði bank­inn niður virði 16,3 pró­­­senta hluta­fjár­­­­­eign sinnar í fyr­ir­tæk­inu í hálf­­s­ár­s­­­upp­­­­­gjöri sínu í síð­­­asta mán­uði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent