Framlög til Persónuverndar tvöfölduð

Í tæknivæddum heimi eru mál sem varða persónufrelsi og meðferð persónuupplýsinga sífellt að verða umfangsmeiri.

FAcebook
Auglýsing

Fram­lög til Per­sónu­verndar munu tæp­lega tvö­fald­ast á næsta ári, sam­kvæmt nýfram­lögðu fjár­laga­frum­varpi. Fjár­fram­lög til stofn­un­ar­innar fara úr 117,3 millj­ónum á þessu ári í 209 millj­ónir á næsta ári.

Ástæðan fyrir þess­ari hækkun er meðal ann­ars breytt og umfangs­meira hlut­verkt Per­sónu­verndar vegna breyt­ingar á Evr­ópu­lög­gjöf sem varðar per­sónu­vernd­ar­mál og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga. Sam­kvæmt lög­gjöf­inni munu fyr­ir­tæki og stofn­unar þurfa að til­efna svo­nefndan per­sónu­vernd­ar­full­trúa, og mun Per­sónu­vernd ann­ast und­ir­bún­ing og fræðslu­starf vegna þess­ara miklu breyt­inga sem eru í far­vatn­inu.

Þá kemur fram í upp­lýs­ingum með fjár­laga­frum­varp­inu að fjölga þurfi starfs­mönnum Per­sónu­verndar umtals­vert til að anna þeim störfum breytt lög­gjöf kallar á.

Auglýsing

Rík­­is­­sjóður verður rek­inn með 44 millj­­arða króna afgangi á næsta ári sam­­kvæmt fjár­­laga­frum­varpi árs­ins 2018 sem var kynnt í gær­morg­un. Afgangur fyrir vexti verður 104 millj­­arðar króna en rík­­is­­sjóður mun greiða 73 millj­­arða króna í vexti á árinu 2018, sam­kvæmt frum­varp­inu.

Á móti hefur ríkið einnig vaxta­­tekjur upp á 12 millj­­arða króna. Alls verða tekur rík­­is­­sjóðs 834 millj­­arðar króna en gjöld 790 millj­­arðar króna. Þar kemur einnig fram að ferða­­þjón­usta fari í almennt þrep virð­is­auka­skatts í jan­úar 2019, en áður hafði verið gert ráð fyrir að það myndi ger­­ast um mitt næsta ár. Á sama tíma mun almenna virð­is­auka­skatts­­þrepið lækka úr 24 pró­­sentum í 22,5 pró­­sent.

Á meðal helstu áherslu­­mála í fjár­­laga­frum­varp­inu eru að tekju­­trygg­ing hækk­­­ar, stofn­­styrkir til bygg­ingar almennra íbúða verða þrír millj­­arðar króna og stuðn­­ingur við fyrstu íbúð­­ar­­kaup verður festur í sessi. Hæstu greiðslur í fæð­ing­­ar­or­lofi munu hækka úr 500 í 520 þús­und krónur og fram­lög vegna mót­­töku flótta­­manna verða þre­­föld­uð.

Í til­­kynn­ingu segir að hugað verði sér­­stak­­lega að geð­heil­brigð­is­­málum í kerf­inu og að bygg­ing nýs Land­­spít­­ala muni hefj­­ast á seinni hluta árs­ins 2018 þegar vinna við með­­­ferða­kjarna við Hring­braut hefst. Fram­lög til bygg­ingar spít­­al­ans munu verða 2,8 millj­­arðar króna á næsta ári og alls munu heil­brigð­is- og vel­­ferð­­ar­út­­­gjöld hækka um 4,6 pró­­sent umfram launa- og verð­lags­­þró­un.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent