Sigríður Andersen: „Stórkostlegt ábyrgðarleysi“ hjá Bjartri framtíð

Dómsmálaráðherra segir að það séu mikil vonbrigði að Björt framtíð hafi slitið ríkisstjórnarsamstarfinu og segir það lýsa „stórkostlegu ábyrgðarleysi“ af hendi flokksins.

Sigríður Andersen og Jón Gunnarsson.
Sigríður Andersen og Jón Gunnarsson.
Auglýsing

Sig­ríður And­er­sen dóms­mála­ráð­herra seg­ist geta skilið að mönnum finn­ist það mál sem sprengdi rík­is­stjórn­ina í gær sé trún­að­ar­brest­ur. „En það er það ekki, og það var það ekki.“ Hún segir að sér hafii ekki verið stætt á að gera það að birta gögn í málum manna sem sótt hafa um upp­reist æru áður vegna þess að málið var í með­ferð hjá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál. Þetta kom fram í við­tali við hana í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun.

Björt fram­tíð sleit rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu vegna máls­ins í nótt og bar fyrir sig trún­að­ar­brest. Sig­ríður segir að við­brögð hennar séu trega­bland­in. Ákvörð­unin hafi komið sér á óvart og valdi sér miklum von­brigð­um. „ „Mér finnst þetta lýsa stór­kost­legu ábyrgð­ar­leysi af hendi þessa litla flokks.“ Henni finnst að Björt fram­tíð hafi átt að gefa Bjarna Bene­dikts­syni for­sæt­is­ráð­herra tæki­færi á að tjá sig um mál­ið. „Mér finnst ömur­legt að menn ætli að nýta sér mál af þessum toga.“ Til­kynn­ing Bjartrar fram­tíðar sýni að flokknum hafi aldrei verið nein alvara með því að axla ábyrgð á rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. Sig­ríður stað­festi að hún hefði rætt við Bjarna í gær­kvöldi og í nótt.

Stjórn Bjartrar fram­­tíðar ákvað í nótt að slíta sam­­starfi við rík­­is­­stjórn Bjarna Bene­dikts­­son­­ar, vegna alvar­­legs trún­­að­­ar­brests, að því er fram kom í til­­kynn­ingu. Ráð­herrar Bjartrar fram­­tíð­­ar, Ótt­­arr Proppé og Björt Ólafs­dótt­ir, greindu for­yst­u­­mönnum sam­­starfs­­flokk­anna, Sjálf­­stæð­is­­flokki og Við­reisn, frá þessu seint í gær­kvöld.

Auglýsing

Stjórn Bjartrar fram­­tíðar kom saman í gær­kvöld til að ræða stöð­una sem komin er upp eftir að í ljós kom að faðir for­­sæt­is­ráð­herra, Bene­dikt Sveins­­son, skrif­aði undir með­­­mæla­bréf með beiðni Hjalta Sig­­ur­jóns Hauks­­sonar um að hann fengi upp­­reist æru.

Sam­tals voru 87 pró­­sent stjórn­­­ar­­manna hjá Bjartri fram­­tíð hlynntir því að slíta sam­­starf­inu.

Sig­ríður segir að það hafi verið full ástæða til þess að ræða það við Bjarna Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra að faðir hans hefði skrifað undir með­mæla­bréf­ið, en Sig­ríður upp­lýsti um það í gær að hún hefði gert það í júlí. Menn hljóti að sjá það og ekki hafi verið ástæða til þess að ræða þetta mál við aðra ráð­herra. Engin mál í ráðu­neyt­unum séu und­an­skilin því að for­sæt­is­ráð­herra eigi að fá upp­lýs­ing­ar.  Hún seg­ist hafa verið a ræða við Bjarna bæði sem for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent