Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn eru stærstu flokkarnir á landinu samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Flokkarnir eru næstum jafn stórir, Sjálfstæðisflokkur með 23 prósent og Vinstri græn 22,8 prósent.
Píratar eru þriðji stærsti flokkurinn samkvæmt könnuninni en 13,7 prósent svarenda segjast myndu kjósa flokkinn.
Flokkur fólksins fengi tæp 11 prósent og Framsóknarflokkurinn fengi rúm 10 prósent. Þá fengi Björt framtíð rúm 7 prósent og Viðreisn og Samfylkingin yrðu jafn stór með rúm 5 prósent.
Samkvæmt könnuninni næðu því átta flokkar mönnum á þing.
„Yrðu þetta niðurstöðurnar fengju átta flokkar menn kjörna á þing. Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn fengju 15 þingmenn hvor, Píratar fengju 9 þingmenn, Framsóknarflokkurinn og Flokkur fólksins fengju 7 menn hvor, Björt framtíð héldi í horfinu með fjóra þingmenn. Þá fengju Viðreisn og Samfylkingin þrjá menn hvort. Þetta myndi þýða töluverðar breytingar á þingstyrk flokkanna. Í kosningunum í fyrra fékk Sjálfstæðisflokkurinn 21 þingmann, Vinstri græn og Píratar 10 þingmenn hvor, Framsóknarflokkurinn 8 þingmenn, Viðreisn 7, Björt framtíð 4 þingmenn og Samfylkingin 3,“ segir í umfjöllun Fréttablaðsins.
Hringt var í 1.311 manns þar til náðist í 800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki. Svarhlutfallið var því 61 prósent og tóku 64,4 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar.
Eins og kunnugt er verður kosið 28. október næstkomandi.