Þrátt fyrir að hægt hafi á hækkun fasteignaverðs, á síðustu þremur mánuðum, þá er hækkunin ennþá mikil í sögulegu samhengi en á síðustu tólf mánuðum hefur verð hækkað um 19,1 prósent. Á síðustu þremur mánuðum hefur hækkunin orðið um hægari, eða 1,6 prósent. Sé horft yfir undanfarið hálft ár nemur hækkun 8,5 prósentum.
Á milli mánaðanna júlí og ágúst hækkaði verðið að meðaltali um 1 prósent, samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.