Landsfundi Sjálfstæðisflokksins frestað fram á næsta ár

Mikill samhljómur var í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins um að fresta landsfundi flokksins.

Bjarni
Auglýsing

Ákveðið var á mið­stjórn­ar­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær­kvöldi að fresta lands­fundi flokks­ins fram á næsta ár, en til stóð að hann færi fram dag­ana 4. til 5. nóv­em­ber. Í ljósi breyttrar stöðu í stjórn­mál­un­um, eftir að slitn­aði upp úr rík­is­stjórn­ar­sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisn­ar, þá ákv­aðu flokks­menn að skyn­sam­legt væri að seinka fund­in­um. 

Eins og kunn­ugt er verða þing­kosn­ingar 28. októ­ber næst­kom­andi og vinna stjórn­mála­flokk­arnir nú að því að und­ir­búa þær. Útlit er fyrir afar spenn­andi kosn­ing­ar.

Sam­­kvæmt nið­­ur­­stöð­um könn­unar Zenter rann­sókna mælist Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn með 26,4% fylgi sam­an­­borið við 29,0% í Alþing­is­­kosn­­ing­unum 2016. 

Auglýsing

Fylgi Vinstri grænna hækkar frá kosn­­ing­unum 2016 og mælist nú með 22,8% borið saman við 15,9% árið 2016. „Miðað við 95% örygg­is­bil er hins vegar ekki mark­tækur munur á milli flokk­anna tveggja,“ segir í til­­kynn­ing­u sem Zenter sendi frá sér þegar könn­unin var gerð.

Píratar mæl­­ast með 12,5% fylgi borið saman við 14,5% atkvæða í síð­­­ustu kosn­­ing­­um. Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn mælist með 10,5% fylgi borið saman við 11,5% í kosn­­ing­unum 2016.

Flokkur fólks­ins bætir við sig síðan 2016 og mælist nú með 9,6% borið saman við 3,5% í síð­­­ustu kosn­­ing­­um. Sam­­fylk­ingin mælist með 9,0% sam­an­­borið við 3,5% árið 2016 og Björt fram­­tíð mælist með 5,6% fylgi en fékk 7,2% atkvæða í kosn­­ing­unum 2016. Loks mælist Við­reisn með 2,7% fylgi en flokk­­ur­inn fékk 10,5% atkvæða í síð­­­ustu kosn­­ing­­um.

Íslend­ingar 18 ára og eldri af land­inu öllu voru spurðir í könn­un­inni og tóku 956 ein­stak­l­ingar þátt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent