Obama: Bandaríkin leysa ekki stærstu vandamál heimsins á eigin spýtur

Fyrrverandi forseti Bandaríkjanna gagnrýnir Donald Trump fyrir stefnu hans í alþjóðamálum og heilbrigðismálum heima fyrir.

Auglýsing

Barack Obama, fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, hefur ekki látið mikið fyrir sér fara síðan hann lét af emb­ætti 20. jan­úar síð­ast­lið­inn. Hann kom hins vegar fram í pall­borði á vegum Bill og Melindu Gates-­sam­tak­anna í gær þar sem hann gagn­rýndi stjórn­ar­hætti Don­alds Trump, núver­andi for­seta.

Eftir að hafa flutt erindi svar­aði hann spurn­ing­um. Þar var Obama spurður út í ávarp Trumps fyrir alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna á þriðju­dag. Obama sagði Banda­ríkin ekki geta leyst stærstu vanda­mál heims­ins – eins og til dæmis lofts­lags­mál eða flótta­manna­vand­ann – á eigin spýt­ur.

Obama nefndi Trump aldrei með nafni en sagði skýrt að hann væri óssa­mála þeirri stefnu sem Trump hefur sett. Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Reuters.

„Þetta er pirr­and­i,“ sagði Obama um að Trump og repúblikanar hyggj­ast afnema heil­brigð­is­lög­gjöf­ina sem sam­þykkt var í tíð Obama í Hvíta hús­inu. „Þetta er sér­stak­lega pirr­andi að þurfa að bregð­ast við á nokk­urra mán­aða fresti og koma í veg fyrir að stjórn­mála­menn­irnir okkar skaði banda­ríska borg­ara raun­veru­lega.“

Auglýsing

For­set­inn fyrr­ver­andi sagð­ist telja mik­il­vægt að fólk hefði jákvæðni að vopni. „Við­bragðið verður að snú­ast um höfnun á böl­sýni og svart­sýni, og þrýsta smit­andi og miskun­ar­lausri bjart­sýni að fólki,“ sagði hann. Bjart­sýnin má þó ekki vera blind að mati Obama. „Hún má ekki vera þannig að litið sé fram hjá stærð og vigt vanda­mál­anna. Bjart­sýnis­trú sem barist hefur verið fyrir er inn­byggð í sögur af raun­veru­legum fram­förum í mann­kyns­sög­unn­i.“

Óvæntur Obama

Barack Obama vakti athygli nýverið þegar hann lét óvænt sjá sig í kennslu­stund í mennta­skóla í Was­hington DC. Nem­end­unum var eðli­lega brugð­ið, enda höfðu þau ekki fengið neinar fregnir af því að Obama væri á ferð­inni í skól­anum þeirra. Mynd­band frá heim­sókn for­set­ans fyrr­ver­andi má sjá hér að neð­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent