Sjóðir metnir hæfir til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka

Taconic Capital Advisors LP og tengdir aðilar hafa verið metnir hæfir til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka. Fjármálaeftirlitið sá um matið.

Arion Banki
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) til­kynnti Taconic Capi­tal Advis­ors LP og tengdum aðilum í dag að þeir telj­ist hæfir til að fara með virkan eign­ar­hlut í Arion banka hf. sem nemur allt að 33%, þ.m.t. dótt­ur­fé­lög­unum Stefni hf., Valitor hf., Verði trygg­ingum hf. og Verði líf­trygg­ingum hf.



Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá FME

Ákvörð­unin tekur gildi þegar hin „sér­stöku skil­yrði Fjár­mála­eft­ir­lits­ins frá 8. jan­úar 2010, sem gilda um eign­ar­hald Kaup­þings ehf. í Arion banka hf. í gegnum Kaup­skil ehf., falla brott, í síð­asta lagi þegar hluta­bréf í bank­anum verða tekin til við­skipta á skipu­legum verð­bréfa­mark­að­i,“ að því er segir í til­kynn­ing­unni frá FME.

Einnig hefur Fjár­mála­eft­ir­litið kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Taconic Capi­tal Advis­ors LP og tengdir aðilar og Kaup­þing ehf. telj­ist í sam­starfi í skiln­ingi c-liðar 25. tölul. 1. mgr. 1 gr. a laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki, sbr. VI. kafla sömu laga. Sam­an­lagður virkur eign­ar­hlutur þeirra í bank­anum getur því ein­ungis numið allt að þriðj­ungi, segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Sjóð­fé­lagar í Taconic Sidecar Master Fund SPC, Taconic Opportunity Master Fund LP og Taconic Master Fund 1.5 LP eru að stærstum hluta norð­ur­-am­er­ískir og evr­ópskir stofn­ana­fjár­fest­ar, líf­eyr­is­sjóð­ir, styrkt­ar- og fjöl­skyldu­sjóð­ir.



Í und­ir­bún­ingi hefur verið að skrá Arion banka á mark­að, en lík­legt er að það tefj­ist í það minnsta fram á næsta ár, vegna stjórn­ar­slit­anna í stjórn­mál­un­um. For­svars­maenn Kaup­þings hafa að und­an­förnu fundað með full­trúum stjórn­valda og Seðla­bank­ans um að ríkið falli frá for­kaups­rétti á bank­an­um, ef verð­mið­inn fer niður fyrir 0,8 sinnum eigið fé. Ríkið á 13 pró­sent hlut í bank­anum en miðað við 0,8 sinnum eigið fé, er bank­inn 172 millj­arða króna virði.



Helstu atrið­in, í til­kynn­ingu FME, fara hér á eft­ir.

Fjár­mála­eft­ir­litið leggur mat á hvort sá sem hyggst eign­ast virkan eign­ar­hlut sé hæfur til að fara með eign­ar­hlut­inn með til­liti til heil­brigðs og trausts rekst­urs fjár­mála­fyr­ir­tæk­is. Matið grund­vall­ast á við­mið­um, sem fram koma í 2. mgr. 42. gr. laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki, auk þess sem stofn­unin hefur hlið­sjón af við­mið­un­ar­reglum evr­ópsku eft­ir­lit­stofn­an­anna á fjár­mála­mark­aði frá 2008 og 2016. [1]



Við mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á hæfi Taconic Capi­tal Advis­ors LLP og tengdra aðila lagði stofn­unin mat á hæfi lúx­em­borgska fjár­fest­inga­fé­lags­ins TCA New Sidecar III S.à r.l. til að fara með virkan eign­ar­hlut í Arion banka hf. með beinni hlut­deild. TCA New Sidecar III S.à r.l. fer nú með um 9,99% hlut í bank­an­um.

Þá lagði Fjár­mála­eft­ir­litið mat á hæfi lúx­em­borg­sku fjár­fest­inga­fé­lag­anna TCA Opportunity Invest­ments S.à r.l., TCA Event Invest­ments S.à r.l. og TCA Sidecar II S.à r.l. til að fara með virkan eign­ar­hlut með óbeinni hlut­deild. Félögin fara nú sam­an­lagt með um 40,67% hlut í Kaup­þingi ehf., eða sem nemur um 23,35% óbeinum hlut í Arion banka hf.[2]

Jafn­framt lagði Fjár­mála­eft­ir­litið mat á hæfi eft­ir­far­andi aðila til að fara með virkan eign­ar­hlut í bank­anum með óbeinni hlut­deild:

  • TCA Opportunity Hold­ing S.à r.l. með skráð aðsetur í Lúx­em­borg og er eign­ar­halds­fé­lag TCA Opportunity Invest­ments S.à r.l.
  • TCA Event Hold­ing S.à r.l. með skráð aðsetur í Lúx­em­borg og er eign­ar­halds­fé­lag TCA Event Invest­ments S.à r.l.
  • Taconic Sidecar Master Fund SPC, aðskilin eigna­söfn II og III, sem er sjóður með skráð aðsetur á Cayma­n­eyjum og fjár­magnar TCA Sidecar II S.à r.l. og TCA New Sidecar III S.à r.l.
  • Taconic Sidecar GP LLC sem er ábyrgð­ar­að­ili Taconic Sidecar Master Fund SPC og með skráð aðsetur í Banda­ríkj­un­um.
  • Taconic Opportunity Master Fund LP sem er sjóður með skráð aðsetur á Cayma­n­eyjum og fjár­magnar TCA Opportunity Invest­ments S.à r.l. í gegnum TCA Opportunity Hold­ing S.à r.l.
  • Taconic Associ­ates LLC sem er ábyrgð­ar­að­ili Taconic Opportunity Master Fund LP og með skráð aðsetur í Banda­ríkj­un­um.
  • Taconic Master Fund 1.5 LP sem er sjóður með skráð aðsetur á Cayma­n­eyjum og fjár­magnar TCA Event Invest­ments S.à r.l. í gegnum TCA Event Hold­ing S.à r.l.
  • Taconic Capi­tal Partners LLC sem er ábyrgð­ar­að­ili Taconic Master Fund 1.5 LP og með skráð aðsetur í Banda­ríkj­un­um.
  • Taconic Capi­tal Advis­ors LP sem stýrir fjár­fest­ingum og eignum Taconic Sidecar Master Fund SPC, Taconic Opportunity Master Fund LP og Taconic Master Fund 1.5 LP., sem og TCA New Sidecar III S.à r.l., TCA Opportunity Invest­ments S.à r.l., TCA Event Invest­ments S.à r.l. og TCA Sidecar II S.à r.l. Félagið stundar sér­hæfða sjóða­stýr­ingu í Banda­ríkj­unum sam­kvæmt leyfi og undir eft­ir­liti banda­ríska verð­bréfa­eft­ir­lits­ins, US Securities and Exchange Commission. Félagið stundar einnig leyf­is­skylda starf­semi í Bret­landi og Hong Kong.
  • Taconic Capi­tal Per­for­mance Partners LLC sem er ábyrgð­ar­að­ili Taconic Capi­tal Advis­ors LP og með skráð aðsetur í Banda­ríkj­un­um.
  • Frank Bros­ens sem fer með yfir­ráð í Taconic Capi­tal Per­for­mance Partners LLC.

Mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins grund­vall­að­ist á til­kynn­ingu Taconic Capi­tal Advis­ors LP og tengdra aðila til að fara með allt að 33% virkan eign­ar­hlut í Arion banka hf., fylgi­skjölum hennar og öðrum upp­lýs­ingum sem stofn­unin afl­aði frá aðil­un­um. Matið byggði einnig á upp­lýs­ingum sem stofn­unin afl­aði frá erlendum fjár­mála­eft­ir­lit­um.

Við matið var sér­stak­lega horft til þess að Arion banki hf. telst kerf­is­lega mik­il­vægt fjár­mála­fyr­ir­tæki sam­kvæmt skil­grein­ingu fjár­mála­stöð­ug­leika­ráðs. Með hlið­sjón af því kann­aði Fjár­mála­eft­ir­litið sér­stak­lega getu Taconic Capi­tal Advis­ors LP og tengdra aðila til að styðja fjár­hags­lega við bank­ann við sér­stakar aðstæð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent