Lilja: Harma brottför Sigmundar Davíðs

Varaformaður Framsóknarflokksins segist hafa stutt Sigmund Davíð frá árinu 2009. Hún harmar brotthvarf hans en vill að Framsókn sýni samstöðu inn í kosningarnar framundan.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Auglýsing

Lilja Dögg Alfreðs­dótt­ir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist harma brott­hvarf Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar úr Fram­sókn­ar­flokkn­um. Í við­tali við Frétta­blaðið í dag, seg­ist hún hafa stutt hann frá því árið 2009, þegar hann varð for­mað­ur, og þau hafi haft náið sam­starf um stór mál.

„Ég harma brott­hvarf ­Sig­mundar Dav­íðs úr Fram­sókn­ar­flokkn­um. Ég studdi hann til for­mennsku árið 2009 og hafa leið­ir okkar legið saman í efna­hags­mál­un­um. Við höfum unnið að úr­lausn stórra efna­hags­mála eins og almennu skulda­leið­rétt­ing­unn­i og losun fjár­magns­hafta. Báð­ar­ þessar efna­hags­að­gerðir voru far­sæl­ar og rufu ákveðna kyrr­stöð­u. Alltaf þegar stjórn­mála­flokk­ur missir öfl­ugt fólk, þá er eft­ir­sjá að því. Brýnt er að Fram­sókn­ar­menn snúi bökum saman og hefji kosn­inga­bar­átt­una til að ná árangri,“ segir Lilja. 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra.

Auglýsing

Sig­mundur Davíð segir að fram­boð hans muni bjóða fram í öllum kjör­dæm­um. Hann seg­ist jafn­framt ekki úti­loka sam­starf við Björn Inga Hrafn­as­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn for­svars­manna fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Pressunn­ar, sem Sig­urður G. Guð­jóns­son hrl. bjarg­aði frá gjald­þroti, í það minnsta tíma­bund­ið, á dög­un­um. Fyr­ir­tækið var með mörg hund­ruð millj­óna skulda­hala, meðal ann­ars við rík­is­sjóð, stétt­ar­fé­lög og líf­eyr­is­sjóði.

Sig­mundur Davíð greindi frá því  í gær, að hann ætl­aði sér að fara úr Fram­sókn­ar­flokknum og stofna nýtt fram­boð fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 28. októ­ber.  Í ítar­legum pistli á vef sínum fer hann yfir ástæður þess að hann hefur nú ákveðið að hætta og stofna nýtt fram­boð. „Ég geri mér grein fyrir að ein­hverjir kunna að vera þeirrar skoð­unar að ég hefði ekki átt að tjá mig eins opin­skátt og raun ber vitni um inn­an­mein Fram­sókn­ar­flokks­ins. Von­andi virða þeir hinir sömu það þó við mig að ég varð að skýra hvers vegna ég tók þá ákvörðun sem ég hef nú tekið og líti jafn­framt til þess að ég hef látið vera að nefna flest það sem við­kvæm­ast getur talist í atburða­rás síð­ustu miss­era í flokkn­um,“ segir Sig­mundur Dav­íð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent