Yfirmaður Costco: Það voru uppi efasemdaraddir um verslun á Íslandi

Yfirmaður hjá Costco í Evrópu segir að fyrirtækið hafi greint íslenska markaðinn vel áður en fyrirtækið opnaði verslun sína hér á landi.

Costco
Auglýsing

Steve Pappas, einn yfir­manna Costco í Evr­ópu (SVP), sagði á fundi Íslands­banka að það hefðu verið uppi efa­semd­araddir innan fyr­ir­tæk­is­ins um inn­reið Costco til Íslands. „Við erum yfir­leitt að hugsa um borgir með eina milljón eða fleiri fyrir okkar versl­an­ir,“ sagði Pappas þegar hann var spurður út í það á hverju efa­semd­irnar hefðu byggt.

Íbúa­svæði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er ein­ungi ríf­lega fimmt­ungur af þess­ari stærð sem Pappas nefndi.

Pappas segir mót­tök­urnar sem fyr­ir­tækið hefur fengið hafa ein­stak­lega ánægju­leg­ar. Eftir að hafa greint mark­að­inn á Íslandi, þá hafi verið fyri­tækið metið sem svo að það væru tæki­færi í því fólgin að bjóða upp á góða versl­un­ar­upp­lifun og leggja mikið upp úr því að áskrif­endur Costco korta fái mikið fyrir sinn snúð, meðal ann­ars með góðu verði og fjöl­breyttu vöru­úr­vali. 

Auglýsing

Óhætt er að segja að stærð Costco sé í engu sam­ræmi við íslenska mark­að­inn, sé horft til mark­aðsvirð­ist fyr­ir­tæk­is­ins. Virði fyr­ir­tæk­is­ins nemur um 72 millj­örðum Banda­ríkja­dala, sem er um sjöföld upp­hæð mark­aðsvirðis íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins.

Til sam­an­burðar nemur mark­aðsvirði Haga, stærsta íslenska smá­l­sölu­fyr­ir­tæk­is­ins, nú 39,3 millj­örðum króna eða sem nemur 0,5 pró­sent af mark­aðsvirði Costco.

Fyr­ir­tækið rekur 740 versl­un­ar­rými um allan heim, og er með ríf­lega 130 þús­und starfs­menn í vinnu.

Í sam­tali Pappas við Björn Berg Gunn­ars­son, fræðslu­stjóra hjá Íslands­banka, kom fram að Costco myndi leggja upp með að við­halda og bæta þjón­ustu við þá kort­hafa til fram­tíðar lit­ið, en það hefur verið aðals­merki fyr­ir­tæk­is­ins frá því það var stofn­að. Tæp­lega 100 þús­und aðild­ar­kort hafa verið seld hér á landi, til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja.

Steve Pappas, einn af yfirmönnum Costco í Evrópu, var gestur á fundi Íslandsbanka.

Fyr­ir­tækið hefur starfað frá árinu 1983 og var stofnað í útjaðri Seatt­le, í sveit­ar­fé­lag­inu Issaqu­ah, þar sem höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins eru enn í dag.

Óhætt er að segja að mikil fram­þróun sé nú að eiga sér stað í smá­sölu, og hafa nýjar lausnir, meðal ann­ars í net­versl­un, ekki síst komið frá keppi­nauti Costco, tækni- og smá­söluris­anum Amazon. Höf­uð­stöðvar þess fyr­ir­tækis eru í Seatt­le, en það olli miklum titr­ingi á mark­aðnum á dög­unum þegar Amazon keypti Whole Foods. 

Aðspurður um miklar tækni­fram­farir í verslun sagði Pappas að allir væru að reyna finna hag­kvæmar lausnir, þegar kæmi að net­verslun og heim­send­ing­um. Þetta væri erfitt og krefj­andi við­fangs­efni, en samt væri það ennþá þannig, að stað­setn­ing versl­ana skipti máli og að fólk væri ennþá að sækja inn í versl­an­ir. „Fólk vill ennþá heim­sækja versl­an­ir,“ sagði Pappas, en minnt­ist sér­stak­lega á að þetta væri krefj­andi þegar kæmi að ferskvör­u­m. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent