Fjölmennur fundur kjördæmisráðs VG í Norðvesturkjördæmi, haldinn á Hótel Bjarkalundi, samþykkti rétt í þessu eftirfarandi framboðslista, að tillögu kjörnefndar, vegna komandi alþingiskosninga: Lilja Rafney Magnúsdóttir, Alþingismaður leiðir listann áfram, Bjarni Jónsson, sveitarstjórnarmaður og forstöðumaður, Skagafirði er áfram í öðru sæti, en nýr í 3. Sæti er Rúnar Gíslason, háskólanemi í Borgarnesi.
Auglýsing
Framboðslisti Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi
- Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður, Suðureyri.
- Bjarni Jónsson, sveitarstjórnarfulltrúi og forstöðumaður, Skagafirði.
- Rúnar Gíslason, háskólanemi, Borgarnesi.
- Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur og yfirnáttúrubarn, Hólmavík.
- Dagný Rósa Úlfarsdóttir, bóndi á Ytra-hóli og kennari, Skagabyggð.
- Hjördís Pálsdóttir, safnstjóri, Stykkishólmi.
- Reynir Eyvindsson, verkfræðingur, Akranesi.
- Þröstur Þór Ólafsson, framhaldsskólakennari, Akranesi.
- Sigríður Gísladóttir, dýralæknir, Ísafirði.
- Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, kennari, Reykholtsdal, Borgarbyggð.
- Bjarki Hjörleifsson, athafnamaður, Stykkishólmi.
- Eyrún Baldursdóttir, hjúkrunarfræðinemi, Borgarnesi.
- Matthías Sævar Lýðsson, bóndi á Húsavík, Strandabyggð.
- Lárus Ástmar Hannesson, kennari og sveitarstjórnarfulltrúi, Stykkishólmi.
- Guðný Hildur Magnúsdóttir, félagsmálastjóri, Bolungarvík.
- Guðbrandur Brynjúlfsson, bóndi á Brúarlandi, Mýrum í Borgarbyggð.