Lýður stígur niður – Bakkavör metið á 210 milljarða

Bakkavör er á leið á markað í Bretlandi eftir mikla rússíbanaráð og átök um eignarhald frá hruninu á Íslandi. Rekstur félagsins hefur gengið vel að undanförnu.

Lýður Guðmundsson
Auglýsing

Lýður Guð­munds­son, stjórn­ar­for­maður Bakka­varar og stærsti eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins ásamt Ágústi bróður sín­um, sem gegnir stöðu for­stjóra, mun stíga niður úr hlut­verki sínu sem stjórn­ar­for­maður fyrir skrán­ingu félags­ins á mark­að.

Gert er ráð fyrir Simon Burke, fyrr­ver­andi for­stjóri Hamleys, verði stjórn­ar­for­mað­ur, að því er fram kemur í umfjöllun Reuters, en hann á nú sæti í stjórn félags­ins líkt og bræð­urnir báð­ir. Er þetta meðal ann­ars gert til að koma til móts við kvaðir eft­ir­lits­að­ila fyrir fyr­ir­tæki í skrán­ing­ar­ferli.

Skrán­ing Bakka­varar á markað í Bret­landi er fyr­ir­huguð á næst­unni og er verð­mið­inn á félag­inu sagður um tveir millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 210 millj­örðum króna.

Auglýsing

Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar.Bræð­urnir Ágúst og Lýður eru eig­endur félags­ins ásamt fjár­fest­inga­sjóðnum Baupost Group, en þeir stofn­uðu félagið árið 1986.

Á fyrri­hluta þessa árs hófst form­lega und­ir­bún­ingur að skrán­ingu félags­ins og var HSBC bank­inn ráð­inn til þess verk­efnis ásamt Morgan Stanley. Barclays, Rabo­bank og Peel Hunt, ráð­gjafa­fyr­ir­tæki með höf­uð­stöðvar í London.

Bakka­vör er með sterkan efna­hag, en heild­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra námu tæp­lega 1,8 millj­örðum punda í fyrra, eða sem nemur um 252 millj­örðum króna.

Eins og greint var ítar­lega frá, í frétta­skýr­ingu Kjarn­ans í júní síð­ast­liðn­um, þá hefur saga Bakka­varar verið mikil rús­sí­ban­areið á und­an­förnum árum, þar sem tog­ast hafa á ólíkir hags­munir hlut­hafa og kröfu­hafa, sem ekki síst mátti rekja til hruns­ins á Íslandi haustið 2008. Ágúst og Lýður eru nú í hópi rík­ustu manna Bret­lands, sam­kvæmt úttekt The Sunday Times.

Rekstur félags­ins hefur hins vegar gengið vel, en meðal stórra við­skipta­vina fyr­ir­tæk­is­ins, með til­búna rétti fyr­ir­tæk­is­ins í sölu, eru Marks & Spencer og Sains­bury. Í fyrra nam hagn­aður félags­ins, fyrir skatt, um 63 millj­ónum punda, eða sem nemur tæp­lega níu millj­örðum króna.

Í stjórn félags­ins sitja auk Ágúst­ar, Lýðs og Burke, þeir Robert Q. Berl­in, sem er for­stjóri Baupost Group, Todd Krosnow og Denis Henn­equin.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent