Birgir leiðir fyrir Miðflokkinn í Suðurkjördæmi

Fyrrverandi varaþingmaður Framsóknarflokksins mun leiða lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Hann er sérfræðingur í alþjóðasamskiptum og guðfræðingur.

Fastlega er búist við því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Gunnar Bragi Sveinsson muni leiða sitt hvort kjördæmið fyrir Miðflokkinn í komandi kosningum. Ekki hefur verið tilkynnt um hvar þeir muni fara fram.
Fastlega er búist við því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Gunnar Bragi Sveinsson muni leiða sitt hvort kjördæmið fyrir Miðflokkinn í komandi kosningum. Ekki hefur verið tilkynnt um hvar þeir muni fara fram.
Auglýsing

Birgir Þór­ar­ins­son sér­fræð­ingur í alþjóða­sam­skiptum og guð­fræð­ingur mun leiða lista Mið­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi í kom­andi alþing­is­kosn­ing­um. Hann er annar odd­viti flokks­ins sem hefur verið kynntur en fyrir helgi var greint frá því að Berg­þór Óla­son, fram­kvæmda­stjóri á Akra­nesi og áður virkur Sjálf­stæð­is­maður til margra ára, myndi leiða lista flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Berg­þór var um tíma aðstoð­ar­maður Sturlu Böðv­ars­sonar þegar hann var sam­göngu­ráð­herra. 

Birgir Þórarinsson.Í til­kynn­ingu kemur fram að Birgir hafi áður starfað við yfir­stjórn UNRWA, flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir Palest­ínu­menn, í Mið-Aust­ur­lönd­um. Hann hefur sinnt verk­efnum á vegum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, var vara­þing­maður fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í Suð­ur­kjör­dæmi 2009-2013 og sat í sveit­ar­stjórn sveit­ar­fé­lags­ins Voga. Auk þess hefur hann rekið ferða­þjón­ustu um ára­bil.  

Birgir er með meist­ara­próf í alþjóða­sam­skiptum og utan­rík­is­þjón­ustu (MIS) frá Amer­ican Uni­versity, Was­hington D.C. í Banda­ríkj­un­um, með áherslu á hags­muna­gæslu ríkja á alþjóða­vett­vangi. Einnig hefur hann BA próf í guð­fræði frá Háskóla Íslands og próf í Opin­berri stjórn­sýslu og stjórnun frá EHÍ. 

Auglýsing

Fram­boðs­listi Mið­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, Alþing­is­kosn­ingar 2017:

  1. Birgir Þór­ar­ins­son, sér­fr. í alþjóða­sam­skiptum og guð­fræð­ing­ur, Vog­um.
  2. Elvar Eyvinds­son, við­skipta­fræð­ingur og bóndi, Rangár­þingi eystra.
  3. Sól­veig Guð­jóns­dótt­ir, bæj­ar­starfs­mað­ur, Árborg.
  4. Ásdís Bjarna­dótt­ir, garð­yrkju­bóndi, Hruna­manna­hreppi.
  5. Bjarni Gunn­ólfs­son, hótel og rekstr­ar­fræð­ing­ur, Reykja­nes­bæ.
  6. Ingi­björg Jenný Jóhann­es­dótt­ir, sölu­maður og nemi, Reykja­nes­bæ.
  7. Her­dís Hjör­leifs­dótt­ir, félags­ráð­gjafi, Hvera­gerði.
  8. Jón Gunn­þór Þor­steins­son, húsa­smíða­nemi, Flóa­hreppi.
  9. Erling Magn­ús­son, lög­fr. Árborg.
  10. G. Svana Sig­ur­jóns­dótt­ir, mynd­list­ar­mað­ur, Kirkju­bæj­ar­klaustri.
  11. Sæmundur Jón Jóns­son, bóndi, Höfn Horna­firði.
  12. Gunnar Már Gunn­ars­son, umboðs­mað­ur, Grinda­vík.
  13. Ingi Sig­ur­jóns­son, ham­skeri, Vest­manna­eyj­um.
  14. Úlfar Guð­munds­son, hér­aðs­dóms­lög­mað­ur, Reykja­nes­bæ.
  15. Þór­anna L Snorra­dótt­ir, grunn­skóla­kenn­ari, Gríms­nes – og Grafn­ings­hreppi.
  16. Guð­rún Tóm­as­dótt­ir, ferða­þjón­ustu­bóndi, Ölf­us.
  17. Hans­ína Ásta Björg­vins­dótt­ir, eldri borg­ari, Þor­láks­höfn.
  18. Valur Örn Gísla­son, pípu­lagn­inga­meist­ari, Ölf­us.
  19. Jafet Egill Ingva­son, lög­reglu­varð­stjóri, Vík Mýr­dal.
  20. Rúnar Lúð­víks­son, fv. fram­kvæmda­stjóri, Reykja­nes­bær.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent