Kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst um 6,9% á síðasta ári

Samkvæmt Hagstofunni jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 6,9 prósent árið 2016. Þetta er heldur minni hækkun en árið áður en þá jókst kaupmátturinn um 7,9 prósent.

Ráðstöfunartekjur hafa hægt og sígandi aukist frá árinu 2010 eftir að hafa tekið mikla dýfu árin eftir hrun 2008.
Ráðstöfunartekjur hafa hægt og sígandi aukist frá árinu 2010 eftir að hafa tekið mikla dýfu árin eftir hrun 2008.
Auglýsing

Ráð­stöf­un­ar­tekjur á mann juk­ust um 8,7 pró­sent milli ára og kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna á mann jókst um 6,9 pró­sent. Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar sem birt­ist í gærRáð­stöf­un­ar­tekjur heim­ila­geirans juk­ust árið 2016 um 10,2 pró­sent frá fyrra ári. Þær eru skil­greindar sem sam­tölu launa­tekna, eigna­tekna, til­færslu­tekna og reikn­aðs rekstr­ar­af­gangs ein­stak­lings­fyr­ir­tækja en að frá­dregnum eigna- og til­færslu­út­gjöld­um.

Sam­kvæmt Hag­stof­unni eru þessar tölur að mestu byggðar á skatt­fram­tölum ein­stak­linga en leit­ast var við að laga þær sem best að upp­gjöri þjóð­hags­reikn­inga þar sem við átti. Tekið er sér­stak­lega fram að hagn­aður af reikn­aðri eigin leigu íbúð­ar­hús­næðis sé hér tekju­færður þótt hann komi ekki fram í fram­tal­i. 

Vísitala kaupmáttar ráðstöfunartekna á mann 1995-2016. Tafla frá Hagstofunni.

Auglýsing

Sölu­hagn­aði, þ.e. hagn­aði af sölu hluta­bréfa og almennum sölu­hagn­aði, er einnig sleppt í upp­gjör­inu, með hlið­sjón af tekju­hug­tak­inu í þjóð­hags­reikn­ing­um. Tekju­hug­takið nær hér til þeirra tekna sem unnt er að ráð­stafa án þess að gengið sé á efna­hag­inn. Er þá átt við efna­hag í byrjun við­kom­andi tíma­bils áður en hann tekur breyt­ingum vegna fjár­magnstil­færslna, sölu­hagn­aðar eða -taps.

Eigna­tekjur juk­ust um 16,8%

Heild­ar­tekjur heim­ila­geirans árið 2016 juk­ust um 11,1 pró­sent frá fyrra ári. Þar af juk­ust heild­ar­launa­tekjur um 11,6 pró­sent, eigna­tekjur um 16,8 pró­sent og rekstr­ar­af­gangur ein­stak­lings­fyr­ir­tækja um 10,4 pró­sent. Heild­ar­til­færslu­tekjur juk­ust um 7,4 pró­sent milli ára.

Heild­ar­eigna- og til­færslu­út­gjöld juk­ust um 12,4 pró­sent milli ára, þar af juk­ust eigna­út­gjöld um 5,9 pró­sent og til­færslu­út­gjöld um 13,3 pró­sent.

Sam­hliða birt­ingu talna fyrir árið 2016 hafa nið­ur­stöður fyrri ára verið end­ur­skoð­aðar að hluta. Tölur um rekst­araf­gang af rekstri íbúða­hús­næðis hafa verið end­ur­skoð­aðar fyrir árið 2015, með hlið­sjón af áður birtum tölum yfir reikn­aða húsa­leigu í einka­neysl­unn­i. Útreikn­ingar á náms- og rann­sókn­ar­styrkjum yfir tíma­bilið 2012 til 2015 hafa verið leið­réttir en áhrif á heild­ar­nið­ur­stöður eru óveru­leg. Auk ofan­greindra breyt­inga er not­ast við end­ur­skoð­aðar tölur um nettó­laun frá útlöndum yfir tíma­bilið 2013 til 2015.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent