Fjarskiptafyrirtækið Nova kynnti í morgun að fyrirtækið hafi sett í loftið fyrstu 4,5G sendana. Nova verður á meðal fyrstu farsímafyrirtækja í Evrópu til þess að hefja slíka þjónustu en áætlað er að nethraði í farsímum viðskiptavina Nova muni um það bil þrefaldast. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu fyrirtækisins.
Um er að ræða viðbrögð fyrirtækisins við stóraukinni netnotkun sem Nova áætlar að muni vaxa áfram um tugi prósenta á ári. Það er fyrst og fremst streymi á lifandi efni í háum myndgæðum sem kallar á aukna flutningsgetu fjarskiptakerfa.
Nova hefur á síðustu vikum sett upp fyrstu 4,5G sendana og því geta þeir sem eru með nýjustu farsímana nú þegar tengst 4,5G kerfinu en á afmörkuðum svæðum til að byrja með. Nýjustu tegundir farsíma sem styðja 4,5G nethraða eru til að mynda Samsung S7 og Samsung S8, iPhone8 og iPhoneX sem er væntanlegur.
Í tilkynningunni kemur fram að stóraukin netnotkun fólks í farsímum snerti Nova sérstaklega, sem stærsta veitanda farsímaþjónustu á Íslandi, en viðskiptavinir fyrirtækisins noti netið mun meira en viðskiptavinir annarra fjarskiptafyrirtækja. Til marks um það þá fór 63,8 prósent af allri netumferð í farsímum á Íslandi í fyrra, um farsímakerfi Nova.
Nova áætlar að fjárfesta fyrir um 1 milljarð á ári næstu tvö árin. Megnið af fjárfestingum félagsins mun fara í uppbyggingu 4,5G kerfisins sem mun halda áfram allt til ársins 2020 en þá má búast við að fyrstu 5G sendar Nova verði teknir í notkun.
Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, segir að fyrirtækið hafi verið leiðandi þegar kemur að innleiðingu nýrra kynslóða fjarskiptatækni. Fyrirtækið hafi sett upp fyrsta 3G farsímakerfið á Íslandi árið 2006, hafið 4G þjónustu árið 2013 fyrst fyrirtækja og nú 4,5G þjónustu þann 10.10. 2017. „Hver ný kynslóð fjarskiptakerfa hefur haft í för með sér margföldun á hraða og þar með á notkunarmöguleikum farsíma, úrvali smáforrita og annarra samskipta. Aftur og aftur sjáum við hvernig ný öflugri fjarskiptakerfi ryðja brautina og gera nýsköpun og framfarir mögulegar,” segir hún.