Kaup Ardian á Mílu í uppnámi

Franski fjárfestingasjóðurinn Ardian, sem hugðist kaupa allt hlutafé í Mílu af Símanum, hefur upplýst Símann um að þær breytingar sem til þurfi til að fá samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupunum séu of íþyngjandi.

Í október síðastliðnum undirrituðu Ardian France SA og Síminn hf. kaupsamning kaup og sölu alls hlutafjár Mílu ehf.
Í október síðastliðnum undirrituðu Ardian France SA og Síminn hf. kaupsamning kaup og sölu alls hlutafjár Mílu ehf.
Auglýsing

Í októ­ber síð­ast­liðnum und­ir­rit­uðu Ardian France SA og Sím­inn hf. kaup­samn­ing kaup og sölu alls hluta­fjár Mílu ehf., með áætl­uðum sölu­hagn­aði upp á 46 millj­arða króna fyrir Sím­ann, með hefð­bundnum fyr­ir­vara um sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Í síð­asta mán­uði upp­lýsti Sím­inn svo að Ardian hefði óskað eftir sátta­við­ræðum við Sam­keppn­is­eft­ir­litið og skilað inn til­lögum að skil­yrðum til þess að mæta sam­keppn­is­legum áhyggjum þess.

Auglýsing
Nú hefur Ardian hins vegar til­kynnt Sím­anum að það væri mat fjár­fest­inga­sjóðs­ins að til­lög­urnar sem hann hefði lagt til væru of íþyngj­andi og þess eðlis að þær fælu í sér nei­kvæð áhrif í skiln­ingi kaup­samn­ings­ins. Það væri mat Ardian að ef sam­run­inn verði sam­þykktur af hálfu sam­keppn­is­yf­ir­valda með fyr­ir­liggj­andi skil­yrðum fæli það í sér að eitt af skil­yrðum þess að við­skiptin gangi í gegn sam­kvæmt kaup­samn­ingnum telj­ist ekki upp­fyllt. Ardian hafi því upp­lýst að félagið væri ekki reiðu­búið til þess að ljúka við­skipt­unum á grund­velli óbreytts kaup­samn­ings.

Að því er fram kemur í til­kynn­ingu Sím­ans hf. mun fyr­ir­tækið ræða við Ardian um atriði sem varða kaup­samn­ing aðil­anna sam­hliða við­ræðum Ardian við Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent