Minni atvinnuþátttaka meðal múslima ekki rakin til viðhorfa þeirra sjálfra

Niðurstöður nýrrar rannsóknar véfengja algengt viðhorf um að hærra atvinnuleysi meðal múslima í Bretlandi sé hægt að rekja til viðhorfa þeirra sjálfra. Þvert á móti benda þær til þess að það megi rekja til viðhorfa samfélagsins gagnvart múslimum.

andrea-de-santis-bt7bQFxBTec-unsplash.jpg
Auglýsing

Lægri atvinnu­þátt­taka múslima á breskum vinnu­mark­aði verður ekki útskýrð með félags- og menn­ing­ar­legu við­horfi múslima eða fast­heldni þeirra við trú­ar­lega siði. Þetta eru nið­ur­stöður nýrrar breskrar rann­sókn­ar, sem sagðar eru stað­festa að hængur sé á atvinnu­þátt­töku múslima í Bret­landi, en véfengja nið­ur­stöður eldri rann­sókna sem bent hafa til þess að slíkt sé til­komið vegna menn­ing­ar- og trú­ar­hátta múslima.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar nýju sýna að bæði múslim­skir karlar og konur eru mun lík­legri til þess að vera án atvinnu en hvít­ir, kristnir sam­borg­arar þeirra þegar búið var að leið­rétta fyrir aldri, búsetu, menntun og barn­eign­um. Þá voru nið­ur­stöð­urnar einnig skoð­aðar með til­liti til trú­ar, kynja­við­horfum og borg­ara­legri þátt­töku, en höf­undar rann­sókn­ar­innar komust að því að þessir þættir hefðu tak­mörkuð áhrif á atvinnu­þátt­töku.

Auglýsing

Hins vegar benda nið­ur­stöð­urnar til þess að nei­kvæð við­horf gagn­vart múslim­um, sem og þeim sem séu „álitn­ir“ múslimar vegna lit­ar­háttar eða upp­runa, sé ein helsta fyr­ir­staða múslima er þeir sæk­ast eftir atvinnu.

Að því er fram kemur í umfjöllun Guar­dian er rann­sóknin unnin upp úr gögnum sem safnað var á 10 árum með lang­tíma­rann­sókn á bresku heim­il­is­haldi, UK Hou­sehold Longitu­dinal stu­dy, sem fram­kvæmd er á 100 þús­und manns frá 40 þús­und breskum heim­ilum ár hvert, með per­sónu­legum við­tölum þar sem þátt­tak­endur eru spurðir út í félags­hag­fræði­lega stöðu sína. Meðal þess sem þátt­tak­endur eru spurðir um eru trú­ar­legar skoð­anir og hve sterkar þær eru, hvort þeir taki þátt í félags­starfi og hvort þeir séu sam­mála full­yrð­ingum á borð við að eig­in­maður eigi að sjá fjár­hags­lega fyrir heim­il­inu á meðan eig­in­konan sinni störfum innan veggja heim­il­is­ins.

Þannig gátu rann­sak­endur skoðað hvort ákveðin við­horf hefðu áhrif á atvinnu­þátt­töku, og komust að því að þau hefðu tak­mörkuð áhrif og ekki nægi­lega mikil til að útskýra þann mikla mun sem mælist á atvinnu­þátt­töku meðal múslima ann­ars vegar og hvítra og krist­inna hins veg­ar.

Annað sem nið­ur­stöð­urnar benda til er að útlit hafi tals­verð áhrif á aðgengi­leika að vinnu­mark­aðn­um. Þannig sé atvinnu­þátt­taka hvítra múslima á pari við þátt­töku ann­arra þjóð­fé­lags­hópa, en trú­ar­lausir arab­ískir menn hins vegar lík­legri til þess að vera án atvinnu. Höf­undar rann­sókn­ar­innar telja því að útlit hafi meira að segja en trú­ar­iðk­un.

Nið­ur­stöð­urnar benda því til þess að íslamó­fóbía sé marg­þætt og snúi ekki ein­ungis að trúnni sjálfri heldur einnig að lit­ar­hætti, menn­ingu og upp­runa­landi. Þannig sé bæði trú og lit­ar­háttur for­spár­gildi þegar kemur að atvinnu­þátt­töku karla. Trú sé þó enn helsta for­spár­gildi í tengslum við atvinnu­þátt­töku kvenna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokki