Skógareldar, þurrkar og neyðarástand í versnandi hitabylgju

Hitabylgja gengur yfir við Miðjarðarhafið þar sem þurrkar og skógareldar geisa, og nálgast nú Bretlandseyjar þar sem neyðarástandi hefur verið lýst yfir.

Maður kælir sig niður í ítölskum gosbrunni.
Maður kælir sig niður í ítölskum gosbrunni.
Auglýsing

Þús­undir hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sín vegna skóg­ar­elda og hund­ruð lát­ist í hita­bylgj­unni sem nú gengur yfir í suð­ur­hluta Evr­ópu. Ástandið hefur verið hvað verst í mið-­Evr­ópu, svo sem á Spáni og í Frakk­landi og Portú­gal, þar sem skóg­ar­eldar geisa víða, auk þess sem Ítalir glíma við versta þurrk í land­inu í 70 ár. Í öllum þessum löndum hafa hita­tölur farið vel yfir 40 stig og mæld­ist mest 49 stigum í Sevilla á Spáni.

Nú um helg­ina fær­ist hita­bylgjan til norð­urs og aust­urs, og hefur neyð­ar­á­standi verið lýst yfir í Bret­landi vegna rauðrar hita­við­vör­unar í fyrsta sinn. Þar er talið að hit­inn nái hámarki á mánu­dag og þriðju­dag og hafa Bretar verið hvattir til þess að und­ir­búa sig vel og vera helst ekki á ferð­inni, því búast megi við tals­verðum töfum á lest­ar­sam­göng­um, en lestar munu þurfa að aka hægar en ella og ráð­gert er að eldar muni setja strik í reikn­ing­inn á ein­hverjum leið­um, auk þess sem salt­bílar hafa víða verið sendir á götur út til þess að dreifa sandi, í stað salts, í til­raun til þess að koma í veg fyrir að mal­bik bráðni í hit­an­um.

Auglýsing

Talið er að hiti í Bret­landi geti farið yfir 40 stig á sumum stöð­um, þar á meðal í London. Þá má búast við því að hita­bylgjan teygi sig til Belgíu og Hollands, auk þess sem angar hennar munu hafa ein­hver áhrif í Dan­mörku og í Sví­þjóð, þó ekki sé búist við að hiti þar fari yfir 30 stig.

Skóg­ar­eldar hafa þegar brennt stærra land­svæði í Portú­gal en allt árið í fyrra, og þurrkar á Ítalíu gætu leitt til skorts á ólívu­ol­íu, risott­ohrís­grjónum og pasta. Vís­inda­menn vara við því að þetta sé aðeins byrj­unin og að þurrkar og öfgar í veðri eigi eftir að versna vegna lofts­lags­vár­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent