Selta mikilvægari en kuldi við myndun hafíss

Hvað gerist í hafinu þegar aukið magn af ferskvatni blandast því? Hvaða áhrif gæti það haft á myndun hafíss, íssins sem er mikilvægur til að draga úr gróðurhúsaáhrifum? Vísindamenn hafa rýnt í málið.

Hafís dregur úr gróðurhúsaáhrifum.
Hafís dregur úr gróðurhúsaáhrifum.
Auglýsing

Þegar heim­skauta­höfin frjósa og ís mynd­ast er það ekki aðeins vegna þess að kalt loft kælir efstu lög sjáv­ar. Jafn­vel enn mik­il­væg­ara í þessu sam­bandi er að hlýr sjór kemst ekki upp úr haf­djúp­inu vegna þess að selta er umtals­vert minni í efstu og kald­ari sjáv­ar­lög­un­um. Um þetta er fjallað í nýrri rann­sókn vís­inda­manna við Háskól­ann í Gauta­borg.

Auglýsing

Hafís mynd­ast á heim­skauta­svæðum vegna þess að þar kólnar á vet­urna. Kalt vatn er þyngra en hlýtt vatn svo það ætti að sökkva niður í djúpið en ekki hald­ast á yfir­borð­inu. Kalda vatnið ætti þannig að þrýsta því heit­ara upp að yfir­borði og koma í veg fyrir að ís mynd­ist.

En það ger­ist hins vegar ekki og er rann­sókn­ar­efnið í nýju vís­inda­grein­inni sem birt er í vís­inda­tíma­rit­inu Sci­ence advances.

„Selta í yfir­borðs­vatn­inu er lægri þökk sé ferskvatni sem berst út í hafið með bráðnun jökla og heim­skauta­íss sem og úrkomu sem fellur í sjó­inn,“ segir Fabien Roquet, pró­fessor í haf­fræðum við Háskól­ann í Gauta­borg. „Mis­mun­ur­inn á seltu í vatni við yfir­borðið og á meira dýpi er áhrifa­meiri þáttur þegar kemur að myndun haf­íss en lægra hita­stig á heim­skauta­svæð­um. Án þessa mis­munar í seltu myndi sjór­inn ekki verða lag­skiptur heldur myndi hann bland­ast stöðugt og ís þar með ekki mynd­ast.“

Hópur sela á ísjaka. Mynd: Pexels

Þannig myndar efsta lagið með minni seltu „loka“ sem hindrar hlýrra vatn að rísa upp að yfir­borði. Án þessa „loka“ gæti kalda heim­skauta­loftið ekki orðið til þess að ís mynd­ast.

„Eftir því sem nær dregur heim­skaut­unum þeim mun stærra hlut­verki gegnir selta í því að draga úr blöndun sjós og jafna þar með hita­stig alls vatnsmassans,“ segir Roquet.

Þetta sýnir hversu mik­il­vægir ein­stakir eig­in­leikar vatns eru fyrir lofts­lag jarð­ar, heldur hann áfram. Til­færsla á varma milli hafs­ins og and­rúms­lofts­ins verður ekki aðeins vegna mis­munar á hita­stigi heldur einnig seltu hafs­ins. Ef ekki væri fyrir þessa ein­stöku eig­in­leika gæti umfangs­mik­ill hafís ekki mynd­ast líkt og raunin er.

Auglýsing

Hafís spilar mik­il­vægt hlut­verk í að draga úr gróð­ur­húsa­á­hrifum þar sem hann end­ur­kastar geislum sól­ar. „Sam­hliða lofts­lags­breyt­ingum þá sjáum við að hafís minnkar og sömu­leiðis geta heim­skauta­haf­anna til að halda „lok­an­um“, með lægri seltu, sem kemur í veg fyrir að kolefni fari út í and­rúms­loft­ið,“ segir Roquet. Sam­tímis fer meira af fersku vatni út í heim­skauta­höfin með hlýrra lofts­lagi. Jöklar eru að bráðna hraðar og auk þess er því spáð að úrkoma eigi eftir að aukast.

Þetta gæti haft þær afleið­ingar að mis­munur á seltu eykst sem aftur gæti ýtt undir frek­ari myndun haf­íss. „En það er erfitt að spá fyrir um hvaða áhrif verða ráð­andi. Við þurfum ein­fald­lega og bíða og sjá,“ segir Roquet.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent