Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra í starfsstjórn, hefur óskað eftir því við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að fela sjö manna hópi sérfræðinga að koma með tillögur að því hvernig ráðstafa má fjármagni úr stöðugleikasjóði til að efla nýsköpun í atvinnulífinu.
Stöðugleikasjóðurinn varð til eftir að Bjarni skipaði sérfræðingahóp um stofnun sjóðsins 9. febrúar síðastliðinn með það að markmiði að halda utan um arð af orkuauðlindum í eigu ríkissjóðs. Hópurinn sem forsætisráðherra skipar nú á að fjalla um hvernig fénu skal ráðstafað.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu í dag. „Í tengslum við stofnun sjóðsins hafa verið skoðaðir möguleikar á því að nýta hluta af framtíðarráðstöfunarfé sjóðsins til að efla nýsköpun og styðja við vöxt og þroska sprotafyrirtækja,“ segir í tilkynningunni. „Með því væri sáð fræjum til eflingar nýrra vellaunaðra starfa í framtíðinni með sama hætti og fræjum var sáð til efnahagsuppbyggingar þegar orkuauðlindir voru beislaðar á síðari hluta 20. aldar.“
Hópurinn er skipaður sjö einstaklingum sem öll hafa tengsl við heim sprotafyrirtækja og nýsköpunar. Hópinn skipa:
- Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, formaður
- Helga Valfells, meðeigandi Crowberry Capital
- Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri gagna hjá Qlik í Boston
- Ragnheiður Magnúsdóttir, formaður Tækninefndar Vísinda- og tækniráðs
- Ragnhildur Helgadóttir, formaður Vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs
- Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups
- Sveinn Þorgrímsson, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
„Síðustu misseri hefur þessi hópur unnið að verkefni á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis í samstarfi við MIT háskóla í Bandaríkjunum um atvinnusköpun og eflingu hagvaxtar með nýsköpun,“ segir í tilkynningunni.
Það skal tekið fram að Hjálmar Gíslason er stjórnarformaður Kjarnans.