Formaður Blaðamannafélagsins: Við fordæmum lögbannið

Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir sýslumann ekki eiga neitt erindi inn á ritstjórnarskrifstofur íslenskra fjölmiðla.

Auglýsing
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands

„Við mót­mælum og for­dæmum þessar aðgerðir og teljum að sýslu­maður eigi ekk­ert erindi inn á rit­stjórn­ar­skrif­stofur íslenskra fjöl­miðla. Þessar aðgerðir eru aðför að tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðla og rétti blaða­manna að afla sér gagna og vinna úr þeim. Banka­leynd þjónar engum nema þeim sem hafa eitt­hvað að fela!,“ segir Hjálmar Jóns­son, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands í til­efni lög­banns á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar sem byggir á gögnum úr Glitni, á vef Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Eins og greint var frá í dag, þá féllst Sýslu­mað­ur­­inn í Reykja­vík á kröfu Glitnis Holdco ehf. um lög­­­bann á frétta­­flutn­ing Stund­­ar­inn­ar og Reykja­vík Media, sem bygg­ir á gögn­um inn­­an úr hinum fallna bank­an­­um.  

Í frétta­til­kyn­ingu sem Glitnir HoldCo sendi frá sér í dag kemur fram fyr­ir­tækið hafi á  á föst­u­dag farið þess á leit við sýslu­­mann­s­emb­ættið á höf­uð­borg­­ar­­svæð­inu að lög­­­bann verði lagt við birt­ingu Stund­­ar­inn­ar og Reykja­vík Media ehf. á frétt­um eða ann­arri um­­fjöll­un sem byggja á eða eru unn­ar úr gögn­um er varða einka­­mál­efni veru­­legs fjölda fyrr­ver­andi við­skipta­vina Glitn­is sem eru því bundn­ar banka­­leynd. 

Auglýsing

Þá hafi Glitnir ráðið breska lög­­­manns­­stofu til að gæta hags­muna sinna vegna um­­fjöll­un­ar The Guar­d­i­an sem byggi á sömu gögn­­um.

„Afar fátítt er að lög­bann sé sett á gögn sem fjöl­miðlar á Íslandi byggja fréttir sínar á og mun útskurður sýslumans nú fara fyrir dóm­stóla.  Sam­bæri­legt mál kom m.a. upp árið 2009 þegar lög­banns var kraf­ist á lána­bók Kaup­þings en sú krafa fékk dræmar und­ir­tekt­ir. Sama var uppi á ten­ingnum fyrir 12 árum þegar í októ­ber 2005 var sett lög­bann á tölvu­pósta Jón­ínu Bene­dikts­dóttur sem Frétta­blaðið hafði undir hönd­um. BÍ mót­mælti þeim gjörn­ingi þá líkt og nú.  Það mál gekk alla leið til Hæsta­réttar sem úrskurð­aði að birt­ing Frétta­blaðs­ins á til­teknu inni­haldi póst­anna væri heimil þar sem þeir vörð­uðu þjóð­fé­lags­lega mik­il­vægt mál og ættu erindi til almenn­ings,“ segir á vef Blaða­manna­fé­lags­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent