Bjarni segir lögbannið vera út í hött

Forsætisráðherra segist ekki hafa reynt að stöðva neinn fréttaflutning af sínum málum. Hann hafi fyrir löngu sætt sig við að sem opinber persóna gildi önnur viðmið fyrir hann.

Bjarni
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, segir að lög­bann Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar og Reykja­vík Media sem bygg­ist á gögnum úr Glitni og fjallar að mestu um hann, komi á ein­stak­lega óheppi­legum tíma. Það sé út í hött á þessum tíma­punkti að setja lög­bann á frétta­flutn­ing­inn þótt að hann vilji ekki gera lítið úr því að í gögn­unum séu upp­lýs­ingar um þús­undir Íslend­inga sem séu illar fengn­ar. Þetta kemur fram í við­tali við Bjarna á RÚV.

Þar segir Bjarni að umfjöllun um þátt­töku hans í við­skipta­lífi hafi staðið næstum ára­tug aftur í tím­ann, vegna mála sem snerta hann per­sónu­lega og hafi ekk­ert með almanna­hags­muni að gera. Und­an­farið hafi slíkar fréttir birst í tuga­tali.

Ég hef aldrei gert neina til­raun til að stöðva slíkan frétta­flutn­ing. Ég hef bara leit­ast við að koma fram með svör. Og ég tel að við eigum að byggja okkar opna sam­fé­lag upp með þeim hætti að fjöl­miðlar séu frjálsir af því að flytja frétt­ir, fjalla um mál­efni, sér­stak­lega þau sem varða almenn­ing[...]Ég hef fyrir löngu, löngu síðan sætt mig við það að sem opin­ber per­sóna þurfi að gilda önnur við­mið fyrir mig. Og í ljósi þess að umræðan um þessi mál­efni er dálítið orð­inn hlut­ur, þá finnst mér lög­bann á þessum tíma­punkti eig­in­lega út í hött hvað mig sjálfan varð­ar. En ég vil ekki með því gera lítið úr því að það kunna að vera þús­undir Íslend­inga, eins og maður les í frétt­un­um, sem hægt er að fá upp­lýs­ingar um í ein­hverjum gögnum sem eru illa feng­in. Og það þurfi að fara sína leið í kerf­in­u.“

Auglýsing

Sýsla­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu féllst í gær á kröfu félags­ins Glitn­ir­Holdco, sem heldur á eft­ir­stand­andi eignum þrota­bús Glitn­is,  um að lög­­­­­bann yrði sett á frétta­­­flutn­ing Stund­­­ar­inn­ar og Reykja­vík Media, sem bygg­ir á gögn­um inn­­­an úr fallna bank­an­­­um. Í frétta­til­kynn­ingu sem send var út í gær sagði að ög­­bannskrafan hafi verið lögð fram hjá sýslu­­manni á föst­u­dag. 

Þar sagði einnig Fjár­­­mála­eft­ir­lit­inu hefði verið til­­kynnt um brot á banka­­leynd með frétta­­flutn­ingn­um, og að Glitnir hefði ráðið lög­­­manns­­stofu í Bret­landi til að gæta hags­muna sinna gagn­vart fjöl­mið­l­inum The Guar­d­i­an, sem hefur fjallað um gögnin í sam­vinnu við Stund­ina og Reykja­vík Media.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent