Fréttamenn 365 sekir um meiðyrði

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ummæli fjögurra fréttamanna fréttastofu 365 dauð og ómerk. Þá eru blaðamennirnir fjórir einnig dæmdir til að greiða tveimur mönnum miskabætur vegna frétta um hið svokallaða Hlíðamál.

365
Auglýsing

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi í dag ummæli fjög­urra frétta­manna frétta­stofu 365 dauð og ómerk. Þá eru blaða­menn­irnir fjórir einnig dæmdir til að greiða tveimur mönnum miska­bætur vegna frétta um hið svo­kall­aða Hlíða­mál.



For­­­saga máls­ins er sú að Frétta­­­blaðið birti for­­­síð­­u­frétt í nóv­­­em­ber 2015 undir fyr­ir­­­sögn­inni: „Íbúð í Hlíð­unum útbúin til nauð­g­ana“. Áður hafði verið sagt frá rann­­­sókn lög­­­­­reglu á tveimur aðskildum kyn­­­ferð­is­brota­­­málum vegna meintra árása í fjöl­býl­is­­­­húsi í Hlíða­hverfi í Reykja­vík í októ­ber. Tvær ­konur kærðu tvo karl­­­­menn fyrir kyn­­­­ferð­is­brot í mál­inu og í frétt Frétta­­­­blaðs­ins sagði að „Sam­­­­kvæmt heim­ildum blaðs­ins voru árás­­­­irnar hrotta­­­­legar og íbúðin búin tækjum til ofbeld­isið­k­un­­­­ar“. Fram kom í frétt­inni að mönn­unum hafði svo verið sleppt að lok­inni skýrslu­­­­töku.

Auglýsing

Mikil reið­i­alda reis í kjöl­far frétt­­­ar­inn­­­ar, boðað var til mót­­­mæla fyrir utan lög­­­­­reglu­­­stöð­ina á Hverf­is­­­götu og menn­irnir voru nafn­­­greindir á sam­­­fé­lags­miðlum og birtar af þeim mynd­­­ir.

Rann­­­sóknir á nauð­g­un­­­ar­kær­unum fóru á borð hér­­­aðs­sak­­­sókn­­­ara og lét hann bæði málin niður falla. Annar mað­­­ur­inn hafði einnig kært aðra kon­una fyrir kyn­­­ferð­is­brot en það mál var líka látið niður falla.



Menn­irnir kröfð­ust þess að frétta­mönn­unum yrði gert að greiða hvorum um sig tólf og hálfa milljón vegna ítrek­aðra ummæla sem þeir töldu æru­meið­andi og vegna frið­ar­brots í fréttum sem miðlar 365 sögðu af mál­inu. Miska­bót­unum sem frétta­mönn­unum var gert að greiða voru mun lægri.



Nadine Guð­rún Yag­hi, frétta­mað­ur, var dæmd til að greiða hæstu miska­bæt­urnar eða hvorum um sig 700 þús­und krón­ur. Þá var Þór­hildi Þor­kels­dóttir gert að greiða öðrum mann­inum 100 þús­und krónur í miska­bætur en hinum 200 þús­und krón­ur. Hún var einnig dæmd fyrir frið­helg­is­brot fyrir að hafa fara inn í stiga­gang ann­ars manns­ins. Heimi Má Pét­urs­syni og Stef­áni Rafni Sig­ur­björns­syni var báðum gert að greiða hvorum mann­inum um sig 50.000 krón­ur.



Nokkur ummæli, sem voru end­ur­tekin í fréttum 365 af mál­inu, voru dæmd dauð og ómerk. Fyr­ir­tæk­inu var gert að birta dóm­inn að við­lögðum dags­sektum og gera grein fyrir honum í Frétta­blað­inu, vis­ir.is, útvarps­fréttum Bylgj­unnar og fréttum Stöðvar 2.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent