Kjörsókn hefur verið góð, í samanburði við kosningarnar í fyrra, það sem af er degi í Reykjavík. Samtals höfðu 37,64 prósent þeirra sem eru á kjörskrá, kosið klukkan 16:00. Í fyrra voru það 35,82 prósent á sama tíma, en árið 2013 var fjöldinn svipaður og nú, eða 37,62 prósent.
Samkvæmt tölum frá því klukkan 17:00 hafa 45,31 prósent kosið í Reykjavík, en í fyrra voru það 43,27 prósent.
Mun fleiri kusu utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu í ár en í fyrra. Þegar utan kjörfundi var lokað í gærkvöld höfðu 22.493 kosið. Kvöldið fyrir kjördag alþingiskosninga í fyrra höfðu 19.222 kosið, eða ríflega 3.200 kjósendum færri.
Samtals eru 248.502 kjósendur á kjörskrá á landinu öllu. Þar af hafa 38.646 kosið utan kjörfundar. Kjósendur með lögheimili utan höfuðborgarsvæðis gátu kosið í Smáralind í dag til klukkan 17:00.
Uppfært: Tölum um kosningarþátttöku frá klukkan 17:00 var bætt inn í fréttina þegar þær voru komnar fram.