Alterra Power, stærsti eigandi HS Orku, hefur verið yfirtekið af kanadíska fyrirtækinu Innergex Renewable Energy í viðskiptum sem eru metin á 1,1 milljarð kanadíska dali, eða um 90 milljarða króna. Alterra á 53,9 prósent hlut í HS Orku í gegnum dótturfélag sitt Magma Energy Sweden. Aðrir eigendur HS Orku eru félagið Jarðvarmi, sem er í eigu íslenskra lífeyrissjóða.
Í sameiginlegri tilkynningu Alterra og Innergex kemur fram að allt hlutafé í Alterra skipti um hendur í viðskiptunum. Innergex tekur einnig yfir allar skuldir Alterra. Því er ljóst að eina íslenska orkufyrirtækið sem er í eigu einkaaðila er að skipta um eigendur. HS Orka á og rekur orkuver í Svartsengi og á Reykjanesi auk þess sem virkjanakostir sem fyrirtækið á eru í nýtingarflokki rammaáætlunar.
HS Orka skilaði 2,8 milljarða króna hagnaði í fyrra og eignir félagsins voru metnar á um 45 milljarða króna. Á meðal þeirra eigna er 30 prósent hlutur í Bláa lóninu sem metinn var á 1,8 milljarð króna í síðasta birta ársreikningi HS Orku. Fyrr á þessu ári bárust nokkur tilboð í þann hlut sem voru yfir ellefu milljörðum króna. Alterra vildi taka þeim tilboðum en Jarðvarmi hafnaði því og forsvarsmaður fyrirtækisins sagði að tilboðin endurspegluðu ekki verðmæti Bláa Lónsins. Heildarvirði Bláa lónsins samkvæmt tilboðunum sem fyrir lágu var 37 milljarðar króna.
Forsvarsmenn Alterra voru ekki ánægðir með að tilboðunum hafi ekki verið tekið. En minnihlutaeigendurnir í HS Orku, Jarðvarmi sem er í eigu 14 íslenskra lífeyrissjóða, gátu hafnað þeim vegna hluthafasamkomulags um minnihlutavernd sem gert var þegar Jarðvarmi keypti upphaflega hlut í HS Orku sumarið 2011.
Alterra, sem þá hét Magma Energy, keypti sig inn í HS Orku árið 2009. Viðskiptin voru mjög umdeild og þáverandi stjórnvöldum hugnaðist þau ekki. Þrátt fyrir ítrekaðar inngripstilraunir hélt Magma/Alterra áfram að eignast hluti í HS Orku og átti vorið 2011 nánast allt hlutaféð í fyrirtækinu.
Jarðvarmi keypti svo hlut í HS Orku í maí 2011 og nýtti kauprétt á viðbótarhlut ári síðar. Samanlagt á það félag núna 33,4 prósent hlut. Síðumars keypti svo fjárfestingasjóðurinn Örk 12,7 prósent hlut, en Alterra á rest. Innlendir aðilar eiga því 46,1 prósent hlut í HS Orku.
Í upphaflegri frétt var sagt að salan hafi farið fram í Bandaríkjadölum. Það er ekki rétt, heldur fór hún fram í kanadískum dölum. Þetta hefur verið leiðrétt.