Helgi Hrafn: Efist og ekki trúa öllu sem þið lesið

Falsfréttir og nafnlaus áróður sem dreift er í gegnum samfélagsmiðla eru orðin sífellt stærri hluti af veruleika okkar. Þessi mál eru til umfjöllunar í sjónvarpsþættinum Kjarnanum í kvöld á Hringbraut klukkan 21.

Auglýsing

„Mér finnst vanta nú sem fyrr áherslu á það að trúa ekki öllu sem þú lest. Þótt þér finn­ist það geta verið satt þýðir ekki að það sé satt. Bara að eitt­hvað meiki sens, þýðir ekki að það sé satt. Bara það að þér detti það í hug, þýðir ekki að það sé satt. Maður þarf að efast. Efast um upp­lýs­ingar sem maður fær.“ Þetta segir Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, í sjón­varps­þætt­inum Kjarn­anum í kvöld.

Þar er til umfjöll­unar fals­fréttir og áróður sem miðlað er í gegnum sam­fé­lags­miðla, áhrifa­máttur sam­fé­lags­miðla í nútíma­sam­fé­lagi og hvernig okkur gengur að takast á við þessar breyt­ing­ar. Í aðdrag­anda nýlið­inna kosn­inga voru áróð­urs­síður á borð við Kosn­ingar 2017, Kosn­inga­vakt­ina, Kjóstu og Aldrei aftur vinstri­st­jórn áber­andi. Um er að ræða nafn­lausa hópa, suma hverja vel fjár­magn­aða, sem dreifðu áróðri sem í besta falli mætti flokk­ast sem upp­lýs­inga­röskum og í versta falli sem rætnar lyg­ar.

Helgi Hrafn skrif­aði grein um málið í aðdrag­anda kosn­inga þar sem hann hvatti fólk til að refsa flokkum fyrir árás­ar­aug­lýs­ing­ar. Hann segir það í raun og veru alltaf hafa vantað í mann­legt sam­fé­lag að gera grein­ar­mun á því sem er satt og því sem er ósatt. „Mann­fólkið í eðli sínu er frekar lélegt í þessu. Bara almennt og hefur alltaf ver­ið. [...]Þvæla og útúr­snún­ingur hefur alltaf verið svo­lítið sann­fær­andi. Hefur alltaf verið svo­lítið öfl­ugt fyr­ir­bæri.“

Auglýsing

Elfa Ýr Gylfa­dótt­ir, fram­kvæmda­stýra fjöl­miðla­nefnd­ar, er einnig gestur þátt­ar­ins. 



Hún segir þar að það hefði alveg mátt reikna með því að það sama ger­ist á Íslandi sem ger­ist ann­ars stað­ar. Því hafi áróð­urs- og árás­ar­aug­lýs­ingar í gegnum sam­fé­lags­miðla ekki átt að koma á óvart. „Ég held líka að eitt af því sem er oft sagt í umræð­unni er að áróður hefur alltaf verið til. Við höfum alltaf reynt að hafa áhrif á fólk, skoð­anir fólks og svo fram­veg­is. En það sem við verðum að hafa í huga er að við erum búin að gefa alveg gríð­ar­lega mikið af upp­lýs­ingum um okk­ur. Það þýðir það að það eru stór­fyr­ir­tæki sem hafa mjög miklar upp­lýs­ingar um hvernig við erum, svona prófíla um okk­ur, sem að gefa ákveðnar vís­bend­ingar um það hvaða skoð­anir við höfum og svo fram­veg­is. Það er þarna sem að það sem heitir á ensku „micro tar­get­ing“ kemur inn. Það er að segja mis­mun­andi fram­setn­ing á t.d. gildum eða hvernig maður hefur til­finn­ing­ar, það er hægt að nota það gagn­vart ólíkum hópum í dag.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent