Sigurður Ingi ekki spenntur fyrir myndun stjórnar til hægri

Formaður Framsóknarflokksins segist ekki telja að ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki, Miðflokki og Flokki fólksins myndi svara því kalli að mynda ríkisstjórn með breiða skírskotun sem tryggði pólitískan stöðugleika.

Sigurður Ingi Jóhannsson virðist ekki líklegur til að mynda stjórn til hægri með Gunnari Braga Sveinssyni og fleiri fyrrverandi samherjum sínum í Miðflokknum.
Sigurður Ingi Jóhannsson virðist ekki líklegur til að mynda stjórn til hægri með Gunnari Braga Sveinssyni og fleiri fyrrverandi samherjum sínum í Miðflokknum.
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er ekki spenntur fyrir því að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins. Þetta kemur fram á mbl.is. Þar segir hann að ekki sé hægt að úti­loka eitt eða neitt við myndun starf­hæfrar rík­is­stjórn­ar, en að á sama tíma hafi hann „lagt áherslu á að rík­­is­­stjórn í land­inu, til að búa til póli­­tísk­an stöðug­­leika, þurfi breið­ari skír­skot­un. Ég get ekki séð að hún myndi svara því kall­i.“

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sleit fyrr í dag við­ræðum við þrjá aðra flokka; Vinstri græn, Sam­fylk­ingu og Pírata, um myndun rík­is­stjórnar sem hefði haft 32 þing­menn, eða minnsta mögu­lega meiri­hluta. Ástæðan var sú að Fram­sókn taldi meiri­hlut­ann of tæpan í ljósi þeirra verk­efna sem væru fram und­an, og töldu þar sér­stak­lega til kom­andi kjara­við­ræð­ur. Heim­ild­ar­menn Kjarn­ans segja að flokk­ur­inn hafi sér­stak­lega ekki treyst því að Píratar myndu geta staðið á bak við fjög­urra flokka rík­is­stjórn­ina. í ljósi þeirra mála­miðl­ana sem Píratar virt­ust til­búnir að gera til að klára við­ræð­urnar þá skap­að­ist ótti við að bak­land þeirra myndi telja flokk­inn hafa gefið of mikið eft­ir. Þá gætu skap­ast sam­bæri­legar aðstæður og voru uppi hjá Bjartri fram­tíð á síð­asta kjör­tíma­bili, sem leiddu til stjórn­ar­slita eftir átta mán­aða rík­is­stjórn­ar­sam­starf.

Sig­urður Ingi segir við mbl.is að það hafi verið rætt í stjórn­ar­mynd­un­ar­ferl­inu að fá fleiri flokka um borð í við­ræð­urnar en að nið­ur­staðan áður en for­m­­leg­ar við­ræður hóf­ust hafi verið að flækj­u­­stigið yrði of mikið ef fleiri flokk­um yrði boðið í við­ræð­ur­n­­ar.

Auglýsing

Heim­ildir Kjarn­ans herma að stungið hafi verið upp á því að bjóða Við­reisn inn í mögu­lega rík­is­stjórn til að koma í veg fyrir við­ræðu­slit en að sú til­laga hafi ekki hlotið hljóm­grunn hjá Fram­sókn­ar­flokkn­um.

Sig­urður Ingi segir að bolt­inn sé nú hjá Katrínu Jak­obs­dótt­ur, for­manni Vinstri grænna, sem hafi enn stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð, að minnsta kosti þar til síðar í dag þegar hún fer á fund Guðna Th. Jóhann­es­son­ar, for­seta Íslands. Katrín hefur sagt að hún muni nota dag­inn til að kanna aðra mögu­leika.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent