Töluverð óvissa um framvindu efnahagsmála vegna kjaradeilna

Í nýrri þjóðhagsspá Hagstofu Íslands er gert ráð fyrir því að hagvaxtarskeiðið muni halda áfram, en töluverð óvissa er þó í kortunum.

verkfall.jpg kjaramál kjör
Auglýsing

Gert er ráð fyrir því í nýrri þjóð­hags­spá Hag­stofu Íslands að það muni draga nokkuð úr hag­vexti á næstu árum, en þó verður staða efna­hags­mála með besta móti, sé horft til sögu­legrar reynslu. Atvinnu­leysi verður áfram lítið og ferða­þjón­ustan verður áfram verða eins og vítamín­sprauta fyrir hag­kerf­ið, en gert er ráð fyrir 3 til 5 pró­sent hag­vexti á ári næstu fimm árin. 

Gert er ráð fyrir að með­al­talsat­vinnu­leysi á þessu ári verði 2,7 pró­sent, á næsta ári um 3 pró­sent og fari svo lítið eitt hækk­and­i. 

Eitt af því sem tölu­verð óvissa ríkir um, og nefnt er sér­stak­lega í þjóð­hags­spánni, er þróun launa lands­manna. 

Auglýsing

Launa­vísi­tala hefur hækkað mikið á síð­ustu árum. Hækk­unin var 5,8 pró­sent árið 2014, 7,2 pró­sent árið 2015 og 11,4 pró­sent árið 2016 en launa­vísi­talan árið 2017 mun slaga í 7 pró­sent hækk­un, að því er segir í þjóð­hags­spánn­i. 



Þetta eru miklar hækk­anir sé horft til ann­arra tíma­bila í hag­sög­unni, en eiga sér rætur í þeirri miklu við­spyrnu og þrótti sem ein­kennt hefur gang efna­hags­mála á Íslandi und­an­farin ár.  „Þessi ár hafa heild­ar­ráð­stöf­un­ar­tekjur og kaup­máttur sömu­leiðis hækk­að ­mikið vegna atvinnu­aukn­ingar og lít­illar verð­bólgu. Nú þegar öru­stu hækk­an­irn­ar virð­ast vera að baki er búist við að laun hækki minna næstu ár. Kaup­máttur held­ur á­fram að aukast ef laun hækka umfram verð­lag eins og spáð er. Langstærstur hluti laun­þega er bund­inn af kjara­samn­ingum ýmist til árs­loka 2018 eða út mars 2019, en all­stórir hópar laun­þega eru þegar með lausa samn­inga eða ­samn­inga sem eru við það að losna. Rík­is­starfs­menn í BHM félögum losn­uðu und­an­ ­gerð­ar­dómi þann 31. ágúst síð­ast­lið­inn. Slit rík­is­stjórn­ar­sam­starfs í sept­em­ber ­leiddi til frest­unar á kjara­við­ræðum og er því alls óvíst hvorum megin við ára­mót­in 2017–2018 nýir kjara­samn­ingar verði gerðir sem gætu gefið tón­inn fyrir þá samn­inga ­sem eftir fylgja. Óvissa um breyt­ingar launa árið 2019 verður fyr­ir­ferð­ar­meiri í efna­hags­horfum á næst­unni vegna þessa,“ segir í þjóð­hags­spánni.

Spá Hag­stofu Íslands gerir ekki ráð fyrir að hróflað verði við gild­andi kjara­samn­ing­um, en end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði í þeim gerir ráð fyrir end­ur­skoð­un­ar­mögu­leika í byrjun næsta árs. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent