Rósa Björk: Þjóðin hefur gott að fá frí frá spillingarmálum og hagsmunapólitík

Þingmaður Vinstri grænna segir erfitt að horfa fram hjá siðferðisbresti Sjálfstæðisflokks á undanförnum árum í fjölmörgum málum og telur að þjóðin hafi „gott af því að fá frí frá spillingarmálum og gamaldags hagsmunapólitík.“

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Auglýsing

Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, annar þeirra þing­manna Vinstri grænna sem greiddu atkvæði gegn yfir­stand­andi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­um, segir að van­traust sitt í garð Sjálf­stæð­is­flokks­ins byggi á því hvernig for­ystu­fólk í þeim flokki hafi hand­leikið upp­reist-æru mál­ið. „Sem femínisti og þing­maður flokks sem kennir sig við femín­is­ma, á ég mjög erfitt með að horfa fram hjá því erf­iða máli. Van­traustið byggir líka á spill­ing­ar­mál­unum sem upp komu fyrir aðeins ári síðan vegna Panama­skjal­anna og fleiri við­skipta­tengdra mála sem umlykja for­mann Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Ég get ekki sann­fær­ingar minnar vegna stutt það að fara í form­legar við­ræður við flokk sem hefur sýnt alvar­legan sið­ferð­is­brest á und­an­förnum árum í fjöl­mörgum mál­um. Það er erfitt að horfa fram­hjá því og ég held að þjóðin hefði gott af því að fá frí frá spill­ing­ar­málum og gam­al­dags hags­munapóli­tík.“

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Face­book.

Þing­flokkur Vinstri grænna sam­þykkti í gær að hefja form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk. Sú ákvörðun var sam­þykkt með níu atkvæðum gegn tveim­ur. Auk Rósu Bjarkar lagð­ist Andrés Ingi Jóns­son gegn við­ræð­un­um.

Auglýsing

Rósa Björk segir að hún vilji að Vinstri græn hafi áhrif og að hún muni taka afstöðu til mál­efna­samn­ings þegar hann liggi fyr­ir. „ Ég er ekki sann­færð um að með þessa við­mæl­endur við borð­ið, nái VG nægi­lega góðum mál­efna­samn­ingi fyrir sitt leyti og fyrir sína skýru stefnu í umhverf­is­mál­um, jafn­rétt­is­málum eða í stjórn­ar­skrár­breyt­ing­um. Mál­efna­samn­ingi sem tryggir nægj­an­lega inn­spýt­ingu inn í heil­brigð­is­kerf­ið, mann­eskju­legri áherslur á lífs­gæði öryrkja og aldr­aðra, sem tryggir víð­sýnni stefnu í útlend­inga­málum og ábyrgum áherslum okkar í tekju­öfl­un. En ég vona það sann­ar­lega og ítreka að ég treysti Katrínu Jak­obs­dóttur full­kom­lega til að reyna sitt allra besta til þess að ná góðum samn­ingi, enda frá­bær stjórn­mála­kona sem á að sjálf­sögðu að leiða nú þegar þessar form­legu við­ræð­ur.“

Kemst loks að tölvu eftir viðburðaríkan gærdag og enda­laus símtöl. Eins og flestum er kunn­ugt um greiddum við Andrés...

Posted by Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir on Tues­day, Novem­ber 14, 2017


Andrés Ingi tjáði sig einnig um sína ákvörðun á Face­book í dag. Þar segir ann að það hafi ekki verið auð­veld ákvörðun að greiða atkvæði gegn til­lögu um stjórn­ar­mynd­un. „En eftir óform­legar við­ræður milli Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar fannst mér ekki nóg fast í hendi til að ég treysti mér til að styðja áfram­hald­andi við­ræð­ur. Á þeim tíma sem er lið­inn hef ég styrkst í þeirri trú minni að þetta hafi verið rétt ákvörð­un.“

Andrés Ingi seg­ist þó bera fullt traust til þeirra sem taki þátt í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum fyrir hönd Vinstri grænna til að halda mál­efnum flokks­ins hátt á lofti og ná sem bestum samn­ingi. „Þegar upp er staðið snýst verk­efnið um að tryggja stefnu Vinstri grænna fram­gang, sam­fé­lag­inu til góða - og þar er ég á sömu síðu og allir aðrir í þing­flokkn­um. Það fer hins vegar eftir því hversu mót­tæki­legir við­semj­end­urnir eru hvort mál­efna­samn­ing­ur­inn verði ásætt­an­leg­ur.“

Gærdag­ur­inn var heldur betur áhuga­verður fyrir okkur Vinstri græn! Það var ekki auðveld ákvörðun að greiða atkvæði...

Posted by Andrés Ingi á þingi on Tues­day, Novem­ber 14, 2017


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent