Birting á afriti samtals Davíðs Oddssonar og Geirs H. Haarde í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag var ekki borin undir Geir. Seðlabankinn hefur það nú til skoðunar, hvort hann ætli sér að bregðast við með einhverjum hætti, vegna birtingarinnar.
Í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins og Vísis kemur fram, að Geir hafi ekki vitað af því að samtal hans og Davíðs hefði verið tekið upp, eins og hann hefur tjáð sig um áður. Hann segir það ólíðandi fyrir forsætisráðherra að vera tekinn upp án þess að vera upplýstur um það, til að nýta til birtingar síðar. „Innihald samtalsins ber það með sér að það er ekki vegna efnis þess sem ég hef verið andvígur birtingu þess heldur vegna þess að það er ólíðandi fyrir forsætisráðherra, hver sem hann er, að samtöl hans við embættismenn ríkisins séu hljóðrituð án hans vitundar til opinberrar birtingar síðar. Fróðlegt gæti verið fyrir fjölmiðla að velta fyrir sér hvernig forverar mínir í embætti forsætisráðherra hefðu brugðist við slíku,“ segir Geir í svarinu.
Í símtalinu ræða þeir neyðarlánalánveitingu til Kaupþings upp á 500 milljónir evra, sem kostaði íslenska skattgreiðendur á endanum 35 milljarða króna í tap.
Kjarninn miðlar, móðurfélag Kjarnans, stefndi í síðasta mánuði Seðlabanka Íslands og fór fram á að ógilt yrði með dómi sú ákvörðun bankans að hafna kröfu Kjarnans um aðgang að hljóðritun og afritun af símtalinu.
Seðlabankinn hefur síðan staðfest að samtalið, sem birtist í Morgunblaðinu, væri rétt miðað við hljóðupptöku símtalsins.
Samtalið í heild sinni eins og það er birt í Morgunblaðinu:
Davíð Oddsson seðlabankastjóri: Halló.
Ritari Geirs H. Haarde forsætisráðherra: Gjörðu svo vel.
Davíð: Halló.
Geir: Sæll vertu.
Davíð: Sæll það sem ég ætlaði að segja þér, sko, sko, við út af fyrir sig getum í dag skrapað saman 500 milljónir evra en náttúrlega, en erum þá komnir inn að beini og þá gætum við hjálpað Kaupþingi í einhverja fjóra fimm daga en þá getum við ekki hjálpað Landsbankanum líka, sko.
Geir: Nei.
Davíð: Þú ert að tala um það að við eigum frekar að reyna að hjálpa Kaupþingi.
Geir: Það slær mig þannig sko og mér fannst þeir vera líka á þeirri línu í gærkvöldi allavega þessir Morgan menn.
Davíð: Ég býst við því að við fáum ekki þessa peninga til baka. Þeir segja að þeir muni borga okkur eftir fjóra fimm daga en ég held að það séu ósannindi eða við skulum segja óskhyggja.
Geir: En eru þeir ekki með einhver veð?
Davíð: Við myndum aldrei lána það og við ætlum að bjóða þetta gegn 100% veði í FIH banka.
Geir: Já.
Davíð: Og þá verðum við að vita að sá banki sé veðbandalaus.
Geir: Já.
Davíð: Því þá við megum ekki, sko, við megum ekki setja íslenska ríkið á galeiðuna.
Geir: Nei, nei þetta eru 100 milljarðar, spítalinn og Sundabrautin.
Davíð: Já, já ert þú ekki sammála því að við verðum að gera ýtrustu kröfur?
Geir: Jú, jú.
Davíð: Já.
Geir: Ég held að þeir muni leggja mikið á sig til að reyna samt að að uppfylla þær, sko.
Davíð: Já, já, já, já það er bara eina hættan er sú að þeir séu búnir að veðsetja bréfin og þá geta þeir ekki gert þetta, sko.
Geir: Já, já og hvað myndum við koma með í staðinn?
Davíð: Ja, það veit ég ekki, þá verðum við bara að horfa á það en það, við erum bara að tala um ýtrustu veð, erum að fara með okkur inn að beini þannig að við verðum að vera algjörlega öruggir.
Geir: En er Landsbankinn ekki með neitt slíkt sem hann geti látið okkur hafa?
Davíð: Já, en þá er að við erum ekki með pening í þetta. Við erum að fara alveg niður að rassgati og við ætlum meira að segja að draga á Danina sem ég talaði við í gær og sagði að við myndum ekki gera.
Geir: Já.
Davíð: En við erum búnir að tala við bankastjórana þar og þeir eru að íhuga að fara yfir þetta.
Geir: Um.
Davíð: Það tekur tvo til þrjá daga að komast í gegn.
Geir: Já.
Davíð: En við myndum skrapa, Kaupþing þarf þetta í dag til að fara ekki á hausinn.
Geir: Já, en það er spurning með þá, fer þá Landsbankinn í dag?
Davíð: Já, þá myndi hann fara í dag á hausinn væntanlega.
Geir: Og Glitnir á morgun?
Davíð: Og Glitnir á morgun.
Geir: Já.
Davíð: Landsbankanum verður væntanlega lokað í dag bara.
Geir: Já.
Davíð: Við vitum ekki, reyndar vitum við ekki hvort það er árás á Kaupþing Edge. Við gerum ráð fyrir því þeir hafa ekki sagt okkur það ennþá.
Geir: Er það á Icesave?
Davíð: Það eru farnar 380 milljónir út af Icesave punda og það eru bara 80 milljarðar.
Geir: Þeir ráða aldrei við það, sko.
Davíð: Nei, þeir ráða aldrei við neitt af því, sko, en þetta er það besta leiðin ef við getum afskrifað allar skuldir þjóðarinnar þó að það muni valda vandræðum í Evrópu þá en þeir bara hjálpuðu okkur ekki neitt þannig að það er ha...
Geir: Já, já.
Davíð: Þannig að þetta er nú...
Geir: Heyrðu, ég var að spá í að halda hérna fund klukkan eitt og ætlaði að biðja þig að koma þangað annað hvort einan eða með þeim sem þú vilt hafa með með öllum formönnum stjórnmálaflokkanna.
Davíð: OK.
Geir: Og Fjármálaeftirlitinu?
Davíð: Já.
Geir: Til að fara yfir þetta og...
Davíð: En það, getur þú ekki haft það Jónas ekki Jón Sigurðsson það er óeðlilegt að...
Geir: Jónas, hann var hjá okkur í morgun.
Davíð: Og hvað ertu að hugsa um að?
Geir: Ég myndi vilja að það yrði farið í fyrsta lagi yfir frumvarpið án þess kannski að afhenda þeim það en...
Davíð: En hvað mega menn vera einlægir?
Geir: Ég er búinn að vera mjög einlægur við þá.
Davíð: Já.
Geir: Ég er eiginlega búinn að segja þeim þetta allt.
Davíð: OK.
Geir: Ég segi bara að við erum bara hérna að tala hérna saman í fyllstu einlægni um alvarlegustu vandamál sem upp hafa komið í þjóðfélaginu og ég treysti ykkur til að fara ekki með það.
Davíð: Já, já.
Geir: Og það hafa þeir virt held ég ennþá.
Davíð: Ja, þeir hafa sagt einhverjum af örugglega en það er bara, þú getur aldrei haldið lokinu.
Geir: Nei.
Davíð: Fastara en þetta á.
Geir: Nei, en...
Davíð: Klukkan eitt eða hvað?
Geir: Bara hérna hjá mér í ríkisstjórnarherberginu.
Davíð: Hérna niðri í stjórnarráði?
Geir: Já.
Davíð: OK.
Geir: Spursmálið er svo hérna...
Davíð: Ég kem bara einn held ég, það er betra að vera þarna fámennt en fjölmennt.
Geir: Já og þá myndum við fara almennt yfir heildarmyndina.
Davíð: Já.
Geir: Og af hverju þessi lög eru nauðsynleg.
Davíð: Já, já.
Geir: Og svo er ég að plana það þannig að lögin verði orðin að lögum um sjöleytið, mælt fyrir þeim klukkan fjögur, þingflokksfundir klukkan þrjú og það ætti að skapa okkur rými til þess að...
Davíð: Mælt fyrir þeim klukkan fjögur?
Geir: Já.
Davíð: OK.
Geir: Já, er það ekki rétti tíminn?
Davíð: Jú, jú, jú, jú, jú, jú.
Geir: Ég er búinn að undirbúa það að þetta geti fengið hraða afgreiðslu og þeir...
Davíð: Já, já.
Geir: Hafa haft góð orð um það.
Davíð: Fínt er.
Geir: OK bless, bless.
Davíð: Bless.