Hafa keypt á annað hundrað félagslegar íbúðir á síðustu vikum

Dagur. B. Eggertsson segir að Reykjavíkurborg líti á það sem skyldu sína að svara þeim hluta samfélagsins sem sé að „klemmast“. Þess vegna ætlar borgin að fjölga félagslegum íbúðum verulega á næstu árum.

Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg ætlar að fjölga félags­legum íbúðum um 600 á næstu fimm árum. Á síð­ustu vikum hefur borgin keypt um 85 íbúðir til að bæta við slíkum auk þess sem Félags­bú­stað­ir, sem eru í eigu borg­ar­inn­ar, hafa á sama tíma yfir 50. Frá þessu greinir Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, í sjón­varps­þætti Kjarn­ans á Hring­braut í kvöld.

Um síð­ustu ára­mót átti Reykja­vík­ur­borg 2.445 félags­legar íbúð­ir. Ljóst er að þeim hefur fjölgað um á annað hund­rað í ár. Til sam­an­burðar áttu þau nágranna­sveita­fé­lög höf­uð­borg­ar­innar sem koma þar næst, Kópa­vogur (436 félags­legar íbúð­ir) og Hafn­ar­fjörður (245 félags­legar íbúð­ir) sam­tals 681 félags­lega íbúð í lok síð­asta árs. Í Garðabæ eru 35 slík­ar, 30 í Mos­fellsbæ og 16 á Sel­tjarn­ar­nesi. Því hefur Reykja­vík­ur­borg, ásamt Félags­bú­stöð­um, keypti næstum tvö­falt fleiri íbúðir  á allra síð­ustu vikum sem munu nýt­ast þeim sem þurfa á félags­legu hús­næði að halda en Garða­bær, Mos­fells­bær og Sel­tjarn­ar­nes áttu sam­tals í heild um síð­ustu ára­mót.

Auglýsing

Dagur segir að þrátt fyrir að  Reykja­vík­ur­borg sé með miklu meira af félags­legum íbúðum en hin sveit­ar­fé­lögin vilji borg­in, og líti á það sem skyldu sína, svara þeim hluta sam­fé­lags­ins sem sé að klemm­ast. „Við verðum bara að við­ur­kenna það að þó að ýmis­legt gangi vel í efna­hags­mál­um, þótt það sé upp­sveifla og lítið atvinnu­leysi, þá er fast­eigna­verð að hækka þannig, og leigu­verð er að hækka þannig, að það er ákveð­inn hluti sam­fé­lags­ins sem er að klemm­ast á milli. Þar verða sveit­ar­fé­lögin og opin­berir aðilar að stíga inn.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent