Segir bættar almenningssamgöngur stytta tafatíma í umferðinni

Borgarstjórinn í Reykjavík segir þétting byggðar, bættar almenningssamgöngur og fjölbreyttari ferðamáti borgarbúa muni koma í veg fyrir aukinn tafatíma í umferðinni. Þeir sem hafi mestan hag af slíkri þróun séu notendur bíla.

Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, segir að ef borgin bæti bara við nýjum hverfum í útjaðri sínum muni tafa­tími í umferð­inni verða mun meiri en hann er nú þeg­ar. Hann segir að ef það séu ein­hverjir sem hafi ríka hags­muni af því að almenn­ings­sam­göngur verði efld­ar, til dæmis með lagn­ingu Borg­ar­línu, þá séu það þeir sem ætla sér áfram að nota bíl. Reykja­vík­ur­borg, nágranna­sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­innar og Vega­gerðin séu sam­stíga í þessum málum vegna þess að allar grein­ingar sýni að hags­munir allra fari saman í grænum áherslum í umferð­ar­mál­um.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í ítar­legu við­tali við Dag í sjón­varps­þætti Kjarn­ans á Hring­braut klukkan 21 í kvöld.

Aðspurður um umferð­ar­mál segir Dagur að það þurfi bæði að þétta byggð þannig að ferðir fólks og ann­arra milli heim­ilis og vinnu stytt­ist og til þess að fólk taki almennt minna pláss í umferð­ar­kerf­inu. „Við þurfum að stór­efla almenn­ings­sam­göngur til þess að fólk eigi þann val­kost að kom­ast hratt og vel með almenn­ings­sam­göng­um, en líka til þess að plássið á göt­un­um, fyrir þá sem áfram vilja keyra, verði til stað­ar. Ef það eru ein­hverjir sem hafa ríka hags­muni af því að við eflum almenn­ings­samöngur – að þeir sem vilji geti hjólað eða gengið – þá eru það þeir sem ætla áfram að nota bíl. Þetta sam­hengi er svo mik­il­vægt að allir skilji.

Auglýsing

Hann von­ast til þess að það sam­starf sem mynd­ast hafi milli sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Vega­gerð­ar­innar í þessum málum hald­ist í gegnum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar á næsta ári. Það sé þó freist­ing fyrir ein­hverja stjórn­mála­flokka að taka slag um þetta.  „Gögnin og töl­urnar tala svo skýrt þessu máli að ég bind góðar vonir við að þetta ein­fald­lega bara verð­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent