Verkaskipting liggur fyrir – Vinstri græn fá forseta Alþingis

Vinstri græn fá forsætis-, heilbrigðis- og umhverfisráðuneytið. Framsókn fær samgöngu-, mennta- og félagsmálaráðuneytið. Sjálfstæðisflokkurinn fær rest.

Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson.
Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir stað­festi það á kynn­ing­ar­fundi á stjórn­ar­sátt­mála verð­andi rík­is­stjórnar að auk for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, sem hún mun setj­ast í, fái flokkur hennar heil­brigð­is­ráðu­neytið og umhverf­is­ráðu­neytið í sinn hlut. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mun fá sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­ið, félags­mála­ráðu­neytið og mennta­mála­ráðu­neyt­ið. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær þá fjár­mála- og efna­hags­mála­ráðu­neyt­ið, inn­an­rík­is- og utan­rík­is­ráðu­neyt­ið, ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið og sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­ið.

Ljóst er að Katrín verður for­­sæt­is­ráð­herra og  bú­ist er við því að Svan­­dís Svav­­­ar­s­dóttir verði heil­brigð­is­ráð­herra. Þá fær flokkur hennar emb­ætti for­seta Alþing­is. Stein­grímur J. Sig­­fús­­son verður sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans for­­seti Alþingis en mis­­vísandi skila­­boð ber­­ast um hver muni setj­­­ast í stól umhverf­is­ráð­herra. Þar koma til greina Lilja Raf­­­ney Magn­ús­dótt­ir, Ari Trausti Guð­­munds­­son og Bjarkey Olsen Gunn­­ar­s­dótt­­ir.

Í sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið mun setj­ast Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Lilja Alfreðs­dóttir mun lík­leg­ast verða mennta­mála­ráð­herra og til við­bótar fær Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn félags­mála­ráðu­neyt­ið. Þar er talið lík­leg­ast að Þór­unn Egils­dóttir muni setj­ast.

Auglýsing

Lík­legt er talið að Krist­ján Þór Júl­í­us­son verði færður um set, vænt­an­lega í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­ið, og Bjarni Bene­dikts­son verður fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son verður þá áfram utan­rík­is­ráð­herra, Sig­ríður And­er­sen áfram ráð­herra inn­an­rík­is­mála og Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir áfram ráð­herra ferða­mála, iðn­aðar og nýsköp­un­ar. Jón Gunn­ars­son þykir lík­leg­astur til að detta út úr rík­is­stjórn­inni.

Það mun þó liggja fyrir eftir að þing­flokks­fundum flokk­anna þriggja lýk­ur, en þeir fara fram síðar í dag.

Katrín sagði í fram­sögu sinni á fund­inum í dag að rík­is­stjórnin myndi ráð­ast í upp­bygg­ingu sam­fé­lags­legra inn­viða. Hún nefndi sér­stak­lega heil­brigð­is­kerf­ið, mennta­kerfið og sam­göngu­mál. Þá verði það stórt verk­efni að skapa sátt á vinnu­mark­aði. For­gangs­mál rík­is­stjórn­ar­innar verði að kalla alla aðila vinnu­mark­að­ar­ins að borð­inu til þess.

Bjarni Bene­dikts­son tók undir með Katrínu og sagði að það hefði hjálpað til við að slípa flokk­anna saman að taka sér tíma og fara yfir ein­staka mála­flokka. Nið­ur­staðan end­ur­spegli að hér sé þjóð í sókn­ar­hug. Þeir sem standi að þessum sátt­mála hafi mikla trú á því að hér sé hægt að gera vel á næstu árum, bæði hvað varðar félags­legt öryggi en ekki síður efna­hags­lega vel­sæld í land­inu. Þá sagði Bjarni að heild­ar­tekjur rík­is­ins á næsta ári verði umtals­vert meiri en reiknað var með og að þær tekjur veðri not­aðar til að ráð­ast í þau brýnu verk­efni sem liggja fyr­ir.

Tölu­verð tíma­mót séu í sátt­mál­anum hvernig sé talað til Alþing­is. „Þegar öllu er á bolt­inn hvolft þá er þetta undir okkur sjálfum kom­ið.“ Ytri aðstæð­urnar eru það góð­ar.

Sig­urður Ingi sagði að nú væri mikið tæki­færi til inn­viða­upp­bygg­ingar og til að takast á við ýmsar áskor­unar til fram­tíð­ar.

Ítar­leg umfjöllun um stjórn­ar­sátt­mál­ann mun birt­ast hér á Kjarn­anum síðar í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent