Lísa og Bergþóra aðstoða forsætisráðherra

Katrin Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur valið sér aðstoðarmenn. Tvær reynslumiklar ungar konur þar á ferð.

Katrín Jakobsdóttir kosningar
Auglýsing

Lísa Krist­jáns­dóttir og Berg­þóra Bene­dikts­dóttir hafa verið ráðnar aðstoð­ar­menn Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­sæt­is­ráð­herra og for­manns Vinstri grænna.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Lísa Krist­jáns­dóttir hefur verið aðstoð­ar­maður Katrínar Jak­obs­dótt­ur, sem for­manns Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs, frá árinu 2013. Hún hefur starfað með Vinstri­hreyf­ing­unni - grænu fram­boði um ára­bil og m.a. verið kosn­inga­stjóri hreyf­ing­ar­innar fyrir allar þing­kosn­ingar frá árinu 2007.

Auglýsing

Lísa var aðstoð­ar­maður heil­brigð­is­ráð­herra árin 2009 - 2010 og sat í Þjóð­leik­hús­ráði á árunum 2009-2013.

Hún  starf­aði auk þess lengi innan kvik­mynda­iðn­að­ar­ins sem aðstoð­ar­leik­stjóri, var versl­un­ar­eig­andi í Flatey á Breiða­firði og hefur gegnt starfi við­burða­stjóra hjá bóka­út­gáf­unni Bjarti og Ver­öld svo fátt eitt sé nefnt. 

Lísa er stúd­ent frá Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð og leggur nú stund á MBA- nám við Háskóla Íslands með starfi. 

Berg­þóra lætur nú af störfum sem fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs, en hún gegndi áður starfi mannauðs­stjóra hjá Plain Vanilla. 

Þá starf­aði hún innan hót­el­geirans  á árunum 2006 - 2013, m.a. sem for­stöðu­maður gistis­viðs Rad­is­son-Blu Hótel Sögu og sem hót­el­stjóri, bæði hér á landi  og erlend­is. 

Berg­þóra situr í stjórn Félags­stofn­unar stúd­enta og hefur gegnt stjórn­ar­for­mennsku þar frá árinu 2017. 

Berg­þóra er stúd­ent frá Mennta­skól­anum á Akur­eyri og með B.A. próf í stjórn­mála­fræði og mál­vís­indum frá Háskóla Íslands. Hún var for­maður Röskvu og sat í Stúd­enta­ráði Háskóla Íslands og í stjórn ráðs­ins á náms­ár­un­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent