Ekki mikil hefð fyrir því að ráðherrar segi af sér á Íslandi

Forsætisráðherra segir að það sé erfitt að breyta því yfir nótt að pólitísk ábyrgð sé menningarbundin. Hingað til hafi ekki tíðkast að ráðherrar segi af sér til að axla ábyrgð. Katrín Jakobsdóttir er gestur Kjarnans á Hringbraut klukkan 21.

Auglýsing

„Hér hefur auð­vitað ekki verið mikil hefð fyrir því til að mynda að ráð­herrar segi af sér eða eitt­hvað slíkt. Það hefur ekki verið hluti af menn­ing­unni. Ég held að það sé mjög erfitt að breyta því yfir nótt. Svo maður segi það alveg hreint út.“ 

Þetta segir Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, í sjón­varps­þætti Kjarn­ans sem er á dag­skrá Hring­brautar klukkan 21 í kvöld. Katrín er þar í ítar­legu við­tali þar sem hún ræðir meðal ann­ars rík­is­fjár­mál, skatta, skatta­eft­ir­lit, póli­tíska ábyrgð, spill­ingu, mis­skipt­ingu og fram­tíð banka­kerf­is­ins.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Auglýsing

Í aðdrag­anda síð­ustu tveggja kosn­inga hafa ýmsir framá­menn í Vinstri grænum talað mikið um spill­ingu, sið­­ferði, póli­tíska ábyrgð, afnám leynd­­ar­hyggju og nauð­syn þess að útrýma eigi frænd­hygli. Ástæðan var fjöl­mörg spill­ing­ar- og hneyksl­is­mál sem upp hafa komið tengd íslenskum stjórn­málum á und­an­förnum árum. Lítið er hins vegar um þessi atriði í stjórn­ar­sátt­mála þeirrar rík­is­stjórnar sem mynduð var í síð­ustu viku.

Katrín segir í þætti kvölds­ins að póli­tísk ábyrgð sé menn­ing­ar­bundin og að þeirri menn­ingu verði ekki snúið við einn tveir og þrír með reglu­setn­ingu eða öðru slíku. „ Mik­il­væg­asta hlut­verk mitt að minnsta kosti. sem teng­ist því sem við erum að ræða hér um siða­reglur og hags­muna­skrán­ingu og hvernig við tölum um mál þegar þau koma upp, það er að stuðla að því að við tölum um þessi mál með öðru­vísi hætti en hefur ver­ið.“

Hún segir að margir hafi gagn­rýnt sig fyrir að fara í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum sem hefur verið gagn­rýndur fyrir aðkomu að mörgum slíkum mál­um. Það hafi hins vegar þurft að horfa á þá stöðu sem væri uppi. „Við erum með nið­ur­stöðu kosn­inga. Og hver er þá póli­tísk ábyrgð í því að reyna að hafa áhrif til góðs á sam­fé­lagið út frá þeirri nið­ur­stöðu sem er á borð­inu? Út frá þeim tæki­færum sem þá skapast, eins og þau líta út.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent