Basko ehf., hefur undirritað kaupsamning um kaup á 50 prósent hlutafjár í Eldum rétt ehf. Seljendur eru félög í eigu Kristófers Júlíusar Leifssonar og Vals Hermannssonar, stofnenda Eldum rétt. Kristófer og Valur munu áfram starfa sem framkvæmdastjórar félagsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Viðskiptavinir Eldum rétt geta fengið sent til sín, eða sótt, hráefni og uppskriftir að hollum máltíðum fyrir heimilið. Í viku hverri koma nýjar uppskriftir inn á vefinn eldumrett.is. Í boði eru nokkrar tegundir af matarpökkum og mismunandi stærðir. Markmið Eldum rétt er að stuðla að heilbrigðara líferni og draga úr matarsóun.
Basko fer með eignarhald á nokkrum félögum sem reka verslanir undir merkjum Iceland, 10-11, Kvosarinnar ásamt því að hafa einkaleyfi á rekstri kaffihúsa Dunkin Donuts á Íslandi. Kaupin eru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki Samkeppniseftirlitsins, segir í tilkynningunni.
Kristófer Júlíus Leifsson og Valur Hermannsson, stofnendur Eldum rétt, segja að frá því að Eldum rétt var stofnað árið 2013 hafi félagið vaxið hratt og viðtökur viðskiptavina þeirra verið frábærar. Vöruúrvalið hafi aukist mikið og bjóði fyrirtækið þjónustu á völdum svæðum á landsbyggðinni. „Á þessum tímapunkti töldum við rétt að fá öfluga aðila með sérþekkingu í smásölu inn í hluthafahópinn til þess að styðja við frekari þróun og vöxt félagsins og halda áfram að veita viðskiptavinum okkur framúrskarandi þjónustu. Framundan er spennandi tími þar sem við munum kappkosta að gera enn betur fyrir viðskiptavini okkar. Við erum mjög ánægðir með að fá Basko inn í hlutahafahóp félagins,“ segja Kristófer og Valur.
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Basko ehf., segir að fyrirtækið hafi náð að skapa sér sérstöðu og sé þekkt fyrir gæði og framúrskarandi þjónustu. „Aðkoma Basko að Eldum rétt er liður í að styrkja fyrirtækið og gera því kleift að sækja enn frekar fram í þjónustuframboði fyrir heimilin í landinu. Við erum virkilega ánægð með að fá að vera þátttakendur í uppbyggingu á Eldum Rétt og hlökkum til þess að taka næstu skref með þeim,“ segir Árni Pétur.