Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram þingsályktunartillögu þar sem farið er fram á að ríkisstjórnin komi að byggingu að minnsta kosti fimm þúsund leiguíbúða svo fljótt sem auðið er. Íbúðirnar eiga að nýtast til þess að koma fótunum undir leigumarkað sem er rekinn án hagnaðarsjónarmiða. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Í greinargerð sem fylgir þingsályktunartillögunni segir að það sé nauðsynlegt að bregðast við neyðarástandi á húsnæðismarkaði þar sem mikill fjöldi fólks fái ekki lausnir við hæfi og búi við mikið óöryggi. „Koma þarf ungu fólki og leigjendum í öruggt húsaskjól og mæta kröfum stéttarfélaga um aukinn félagslegan stöðugleika. Það er best gert með því að ríkið komi að stórfelldri uppbyggingu á íbúðum til að mæta skorti og tryggi að sú mikla uppbygging á nýjum íbúðum sem er í farvatninu nýtist þeim sem lakast standa á húsnæðismarkaði. Aðkoma ríkisins er nauðsynleg til þess að leggja grunn að traustum leigumarkaði og tryggja að mikil fjölgun íbúða á næstu árum verði hagkvæm fyrir samfélagið og nýtist í baráttunni gegn fátækt.“
Í greinargerðinni segir að útfæra þurfi aðkomu ríkisins í nánu samstarfi við sveitarfélögin í landinu og Íbúðalánasjóð. Meta þurfi hvar þörfin sé fyrir nýtt húsnæði og tryggja að uppbygging eigi sér stað þar. „Aðkoma ríkisstjórnarinnar að uppbyggingu 5.000 íbúða samkvæmt þingsályktunartillögu þessari verði á grundvelli laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016. Veita þarf stofnstyrki á grundvelli laga um almennar íbúðir í ríkari mæli en nú er gert. Árið 2015 var samið við stéttarfélög um uppbyggingu 2.300 almennra íbúða. Byggja þarf mun fleiri íbúðir og hraða uppbyggingunni. Íbúðalánasjóður áætlar að til ársloka ársins 2019 verði þörf fyrir 9.000 nýjar íbúðir á landinu öllu og rúmlega 2.000 á hverju ári þar á eftir.“
Í sáttmálanum er einnig greint frá því að ríkisstjórnin muni fara í „aðgerðir sem lækka þröskuld ungs fólks og tekjulágra inn á húsnæðismarkaðinn. Í því augnamiði verða stuðningskerfi hins opinbera endurskoðuð þannig að stuðningurinn nýtist fyrst og fremst þessum hópum. Meðal annars verða skoðaðir möguleikar á því að hægt verði að nýta lífeyrissparnað til þessa.“ Ekkert er fjallað um útfærslu á þessum markmiðum.