Vilja að ríkið byggi fimm þúsund leiguíbúðir

Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram tillögu sem felur í sér að ríkisstjórnin byggi að minnsta kosti fimm þúsund íbúðir eins fljótt og auðið er. Tryggja þurfi að íbúðirnar nýtist þeim sem lakast standa á húsnæðismarkaði.

Oddný Harðardóttir og Logi Einarsson eru bæði á meðal flutningsmanna frumvarpsins.
Oddný Harðardóttir og Logi Einarsson eru bæði á meðal flutningsmanna frumvarpsins.
Auglýsing

Þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þar sem farið er fram á að rík­is­stjórnin komi að bygg­ingu að minnsta kosti fimm þús­und leigu­í­búða svo fljótt sem auðið er. Íbúð­irnar eiga að nýt­ast til þess að koma fót­unum undir leigu­markað sem er rek­inn án hagn­að­ar­sjón­ar­miða. Fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar er Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.

Í grein­ar­gerð sem fylgir þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni segir að það sé nauð­syn­legt að bregð­ast við neyð­ar­á­standi á hús­næð­is­mark­aði þar sem mik­ill fjöldi fólks fái ekki lausnir við hæfi og búi við mikið óör­yggi. „Koma þarf ungu fólki og leigj­endum í öruggt húsa­skjól og mæta kröfum stétt­ar­fé­laga um auk­inn félags­legan stöð­ug­leika. Það er best gert með því að ríkið komi að stór­felldri upp­bygg­ingu á íbúðum til að mæta skorti og tryggi að sú mikla upp­bygg­ing á nýjum íbúðum sem er í far­vatn­inu nýt­ist þeim sem lakast standa á hús­næð­is­mark­aði. Aðkoma rík­is­ins er nauð­syn­leg til þess að leggja grunn að traustum leigu­mark­aði og tryggja að mikil fjölgun íbúða á næstu árum verði hag­kvæm fyrir sam­fé­lagið og nýt­ist í bar­átt­unni gegn fátækt.“

Í grein­ar­gerð­inni segir að útfæra þurfi aðkomu rík­is­ins í nánu sam­starfi við sveit­ar­fé­lögin í land­inu og Íbúða­lána­sjóð. Meta þurfi hvar þörfin sé fyrir nýtt hús­næði og tryggja að upp­bygg­ing eigi sér stað þar. „Að­koma rík­is­stjórn­ar­innar að upp­bygg­ingu 5.000 íbúða sam­kvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess­ari verði á grund­velli laga um almennar íbúð­ir, nr. 52/2016. Veita þarf stofn­styrki á grund­velli laga um almennar íbúðir í rík­ari mæli en nú er gert. Árið 2015 var samið við stétt­ar­fé­lög um upp­bygg­ingu 2.300 almennra íbúða. Byggja þarf mun fleiri íbúðir og hraða upp­bygg­ing­unni. Íbúða­lána­sjóður áætlar að til árs­loka árs­ins 2019 verði þörf fyrir 9.000 nýjar íbúðir á land­inu öllu og rúm­lega 2.000 á hverju ári þar á eft­ir.“

Auglýsing
Í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar er lítið um útfærðar aðgerðir til að takast á við stöð­una á hús­næð­is­mark­aði, þar sem eft­ir­spurn er langt umfram fram­boð. Þar segir að rík­is­stjórnin ætli að beita sér fyrir umbótum í hús­næð­is­málum „sem stuðla að efl­ingu og auknu jafn­vægi hús­næð­is­mark­að­ar.“ Í sátt­mál­anum kemur fram að setja þurfi skýr­ari reglur um skamm­tíma­leigu hús­næðis og efla eft­ir­lit með henni, en ekk­ert er sagt um hvernig eða hvort það eigi að gera. Þá verði kann­aðar „for­sendur þess að sveit­ar­fé­lög hafi rík­ari heim­ildir til að stýra leigu­mark­að­i.“

Í sátt­mál­anum er einnig greint frá því að rík­is­stjórnin muni fara í „að­gerðir sem lækka þrösk­uld ungs fólks og tekju­lágra inn á hús­næð­is­mark­að­inn. Í því augna­miði verða stuðn­ings­kerfi hins opin­bera end­ur­skoðuð þannig að stuðn­ing­ur­inn nýt­ist fyrst og fremst þessum hóp­um. Meðal ann­ars verða skoð­aðir mögu­leikar á því að hægt verði að nýta líf­eyr­is­sparnað til þessa.“ Ekk­ert er fjallað um útfærslu á þessum mark­mið­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent