Biskup ætlar ekki að tjá sig um launahækkun sína

Biskup Íslands segir það ekki vera í hennar verkahring að tjá sig efnislega um niðurstöðu kjararáðs, sem leiddi til þess að laun biskups voru hækkuð um 21 prósent.

Agnes Sigurðardóttir er biskup þjóðkirkju Íslands.
Agnes Sigurðardóttir er biskup þjóðkirkju Íslands.
Auglýsing

Agnes Sig­urð­ar­dótt­ir, biskup Íslands, ætlar ekki að tjá sig efn­is­lega um nið­ur­stöðu kjara­ráðs sem leiddi til hækk­unar á launum hennar og presta. Í frétt á vef þjóð­kirkj­unnar segir að hún telji það ekki í sínum verka­hring. Eðli­legt sé þó að benda á að um sé að ræða kerf­is­breyt­ingar og launa­leið­rétt­ingar eftir tólf ára kyrr­stöðu að und­an­skil­inni kjara­skerð­ingu hjá presta­stétt­inni á árinu 2009.

Í frétt­inni segir enn frem­ur:„­Presta­fé­lag Íslands lagði mikla vinnu í að gera kjara­ráði grein fyrir starfs­um­hverfi og starfs­skyldum  presta og bisk­upa. Á meðal þeirra gagna sem lögð voru fram var lýs­ing á dag­legum verk­efnum bisk­ups Íslands sem hann vann að beiðni félags­ins.. Nið­ur­staða ítar­legrar skoð­unar og end­ur­mats kjara­ráðs á starfs­kjörum bisk­upa og presta liggur nú fyrir og þarf ekki að koma á óvart að ástæða hafi þótt til ýmissa breyt­inga og leið­rétt­inga. Að öðru leyti mun biskup Íslands ekki tjá sig um nið­ur­stöð­urnar né svara fyr­ir­spurnum um per­sónu­lega afstöðu sína til þeirra.“

Auglýsing

Sam­­kvæm úrskurði kjara­ráðs sem birtur var í gær hækka laun bisk­­ups, Agn­­esar Sig­­urð­­ar­dótt­­ur, um 21 pró­­sent. Í úrskurð­inum kemur fram að biskup skuli hafa tæp­­lega 1,2 millj­­ónir í mán­að­­ar­­laun auk 40 fastra yfir­­vinn­u­ein­inga. Ein ein­ing er 9.572 krónur og laun bisk­­ups því eftir hækkun alls 1.553.359 krónur á mán­uði.

Í úrskurði kjara­ráðs seg­ir: „Með ákvörðun kjara­ráðs frá 19. júní 2007 voru laun bisk­­ups Íslands felld að sömu launa­töflu og gilti fyrir aðra emb­ætt­is­­menn sem kjara­ráð ákveður laun, en áður heyrði undir Kjara­­dóm að ákveða bisk­­upi laun. Frá þeim tíma hafa laun hans tekið breyt­ingum í sam­ræmi við almennar ákvarð­an­ir kjara­ráðs. Biskup Íslands er æðsti emb­ætt­is­­maður hinnar stjórn­­­ar­­skrár­bundnu íslensku þjóð­­kirkju. Við á­kvörðun launa­kjara hans er höfð hlið­­sjón af því hlut­verki hans og starfs­­skyldum sam­­kvæmt lögum og ­starfs­­reglum sem og eðli og umfangi starfs­ins. Þá er einnig tekið mið af því inn­­­byrðis sam­ræmi sem kjara­ráði ber að gæta og áður er gerð grein fyr­ir­.“ 

Hækk­­unin er aft­­ur­­virk til 1. jan­úar 2017, sam­­kvæmt úrskurð­in­­um. Um næstu mán­að­­ar­­mót mun biskup því fá ein­greiðslu fyrir síð­­asta árið en sú upp­­hæð nemur 3,3 millj­­ónir króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent